Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 398
396
rænna íðorðastofnana, sem haldið var á
Islandi 1995. í tilefni málræktarþings 1996
var gefinn út myndskreyttur ritlingur, sem
nefndist Staða íslenskrar tungu. Samdar voru
málfarsábendingar til birtingar á vefsíðum
Islenskrar málstöðvar, og í árslok 1997 voru
ábendingarnar orðnar 53 talsins. íslensk mál-
stöð og textavarp Sjónvarpsins áttu samstarf
um að birta málfarsábendingar í textavarp-
inu. Haldið var áfram samvinnu við Mjólkur-
samsöluna í Reykjavík við að undirbúa mál-
farsábendingar til birtingar á mjólkurfernum.
Ráðstefnur og fundir
íslensk málnefnd efndi til málræktarþinga
undir merkjum Dags íslenskrar tungu 16.
nóvember 1996 og 15. nóvember 1997, í
samvinnu við Mjólkursamsöluna. íslensk
málstöð efndi til námstefnu fyrir þýðendur
26. apríl 1997 og til orðaþings 13. september
1997 með orðanefndamönnum og fleiri höf-
undum orðasafna.
Hvatt til kcnnslu í þýðingum
íslensk málstöð hvatti Háskóla íslands
1997 til að huga á ný að menntun þýðenda.
Brýnt væri að hefja hið fyrsta formlega
kennslu fyrir verðandi þýðendur við heim-
spekideild Háskóla íslands eða á vegum End-
urmenntunarstofnunar. Var þar m. a. vísað til
niðurstaðna skýrslu um stöðu þýðingamála á
Islandi, sem málstöðin lét taka saman 1992
að ósk menntamálaráðuneytisins.
Upplestrarkeppni barna
Árið 1997 stóð íslensk málnefnd ásamt
Kennaraháskóla Islands, Kennarasambandi
Islands, samtökunum Heimili og skóla, Sam-
tokum móðurmálskennara og íslenska lestr-
arfelaginu að upplestrarkeppni barna í 7
bekk grunnskóla í Hafnarfirði á Álftanesi.
Ari Páll Kristinsson.
____________________Árbók Háskóla íslands
íþróttahús Háskóla íslands
1990-1997
Fátt hefur breyst í íþróttamálum Háskóla
íslands frá síðustu skýrslu um þau efni í Ár-
bók Háskólans 1988-1989. Fjárveiting hefur
því sem næst staðið í stað, nemendum fjölg-
að, húsnæðisvandinn aukist og allt í strandi
með byggingu nýs íþróttahúss. Þrátt fyrir
þetta er íþróttalíf stúdenta nokkuð öflugt og
þátttaka þeirra, í því sem í boði er, yfirleitt
góð. Starfsfólki og kennurum fjölgar stöðugt.
og vilja þau fá fleiri og lengri íþróttatíma. En
þar sem stundataflan er fullskipuð, er ekki
hægt að verða við óskum þeirra, þótt menn
gjarnan vildu. Fjárskortur veldur því að
lækka verður framlag Háskólans til greiðslu
á húsaleigu á íþróttasölum úti í borg, svo að
stúdentar verða að greiða meira en áður úr
eigin vasa, vilji þeir stunda íþróttagreinar,
sem ekki er hægt að koma við í iþróttahúsi
Háskólans vegna smæðar salarins °g
þrengsla á stundaskrá.
Undanfarin ár hafa íþróttaæfingar Há-
skólans farið fram á eftirtöldum stöðum:
íþróttahúsi Háskólans með um lip
stundir á viku, og komast þar að um það bil
1.000 manns við æfingar.
íþróttahúsi Kennaraháskólans, þar sem
fengist hafa 25 stundir á vikur og 250-300
stúdentar sækja tíma.
íþróttasölum Knattspyrnufélags Reykja-
víkur, þar sem til skamms tíma fengust um
60 tímar, en nú aðeins 35-40 tímar með um
400 iðkendur.
íþróttahúsi Hagaskóla, þar sem aðeú'S ^
stundir fást á viku í stað 8 áöur. Þar eru 40-
50 manns við æfingar.
íþróttahúsi fatlaðra, 12-15 stundir á viku
með um 150 iðkendur.
Auk þessa hafa fengist 5-10 tímar a
grasvöllum og í öðrunt íþróttahúsum, Þa
sem um 60-80 stúdentar sækja æfingar. ÞeS®
skal getið, að fæstir þessara nær 2. ^
stúdenta fá tíma oftar en einu sinni til tvl.s,|3a
í viku. Fjölmargir umsækjenda um ,/rJa s
tíma“ komast ekki að, þar sem leigusalir a^
því sem næst eingöngu á morgnana og u
miðjan dag, þegar menn eru bundnir
kennslustundum og öðru skólastarfi.