Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 596
594
Árbók Háskóla íslands
land á 21. öld. Rvk. 1991: Eitt helsta verk-
efni frá upphafi hefur verið að safna og túlka
gögn, sem varða skipulag landsins alls. í
þessu riti eru kynntar hugmyndir að skipulagi
fyrir landið allt, og sett er fram hugmynd um
byggðastefnu og framtíðarsýn, sem ekki er
byggð hvað minnst á umhverfissjónarmið-
um. — Land sem auðlind. Um mótun byggða-
mynsturs á Suðvesturlandi I fortið, nútið,
framtið. Rvk. 1993: Hér var tekinn fyrir einn
landshluti, Suðvesturland, eiginleikar hans
greindir á kortum og sett fram skipulagshug-
mynd og framtíðarsýn iyrir landshlutann. -
Við Aldahvörf. Staða íslands í breyttum
heimi. Rvk. 1995: Þessi bók metur stöðu ís-
lands í breyttum heimi og hvað sé skynsam-
leg þjóðmálastefna og landsskipulag á
grundvelli þess; samstarfsmaður Albert Jóns-
son, stjórnmálafræðingur. - ísland hið nýja.
Rvk. 1997: í þessari bók er greind tillaga að
fyrsta svæðisskipulagi Miðhálendisins og
sýnt, að á undan þeirri vinnu hefði þurft að
leggja helstu línur að landsskipulagi framtíð-
ar á íslandi. Samstarfsmaður Birgir Jónsson,
jarðverkfræðingur og dósent.
Á þessu tímabili birti Trausti Valsson einn
eða með öðrum m. a. þessar skýrslur og tíma-
ritsgreinar: Ritgerðir um arkitektúr, umhverf-
ishönnun og íslandsskipulag: — Framtiðarsýn.
- Island á 21. öld; - Fljótandi skrifstofuhús-
næði igömlu Reykjavíkurhöfn; — Fiskadauöi í
Eiðsvík; - Skipulag samgangna íframtíðinni;
~ Skipulagsmál á hálendi; - Miðhálendið -
Svœðisskipulag - Fyrstu drög; - ísland getur
orðió einn fiskmarkaður með góðu vegakerfi;
~ Hálendið; - Við þurfum eina samhæfða
samgönguáætlun; Við þurfum leiðsögugögn
um lendur framtiðarinnar; - Náttúruvá á ís-
landi, — Land sem auðlind. Um mótun
byggðamynsturs á Suðvesturlandi ífortíð, nú-
tið.framtíð;-Athugun á skipulagi í Fossvogs-
dal; - Hugmynd um byggðamynstur á Norð-
ursvœði höfuðborgarsvœðisins; - Staðfesting
miðhálendis er ótimabær; — Dynamic Forces
that Shape Settlement Patterns. Ofangreind
verkefni hafa verið styrkt af Vísindasjóði og
Rannsóknarsjóði Háskóla íslands.
Samin voru ásamt öðrum handrit að
vídeó- og sjónvarpsmyndunum Landið
ókunna. Leit án enda (um hálendi íslands),
1992; Skipulag i brennidepli (um skipulag
Háskóla íslands), 1992, og Framtiðina verð-
ur að búa til, 1994.
Trausti Valsson skipulagði námskeiðin
Umhverfisskipulag (1991) og Hugmynda-
mótun (1997). Árið 1994 mótuðu Trausti
Valsson, Júlíus Sólnes og Ragnar Sigbjörns-
son námskeiðin Mat á umliverfisáhrifum
framkvœmda, Landfrœðileg upplýsingatcekni
og Starfssvið verkfrœðinga. Trausti Valsson,
Júlíus Sólnes og Birgir Jónsson þróuðu
einnig hugmynd að námskeiðinu Verkfrceð-
ingur og umhverfið haustið 1999. Trausti
Valsson og Ragnar Sigbjörnsson áttu fruni-
kvæðið að stofnun Málstofu umhverfis- og
byggingarverkfræðiskorar árið 1996, og þeir
hafa haft umsjón með henni síðan; Birgir
Jónsson bættist í hópinn haustið 1999.
Trausti Valsson hefur setið í kynningarnefnd-
um verkfræðideildar og umhverfis- og bygg-
ingarverkfræðiskorar síðan 1998, og hann
ritstýrði kynningarritinu Háskóli íslands.
Verkfrœðideild og Verkfrœðistofnun, sem kom
út í mars 1997 og apríl 1999, og ritinu Unt-
hverjismál. Fyrirlestrar, Rvk. 1992.
Þorbjörn Karlsson, prófessor í véla-
verkfræði
Þorbjörn Karlsson var prófessor í véla-
verkfræði frá 1974 til 1997, er hann lét at
störfum fyrir aldurs sakir. Rannsóknarsviö
hans var innan varma- og straumfræði og Þa
sérstaklega hinnar verkfræðilegu hagnýtingar
fræðanna. Þorbjörn átti mjög farsælan fertl '
starfi, var afkastamikill og hafði áhrif me
rannsóknum sínum. Fjöldi nemenda naut
handleiðslu hans í námi og við rannsóknar
verkefni, og það er óhætt að segja, að hann
hafi verið sannkallaður „mentor", leiðbein-
andi og fyrirmynd í senn. Rannsóknir Þ°r
björns á þessu tímabili voru einkum á eftirrar
andi sviðum:
Þurrkun á fiski: Til þess að gera hagnýtmg1*
jarðvarma við fiskþurrkun lysilega, vann Þor^
björn að rannsóknum á þurrkunarferhmn ‘
rakaflæði í fiskholdinu, uppgufun afyí ‘rbor _
fiskjarins og síðan dreifingu rakans í P°rr
loftinu. Samstarf var við Rannsóknasto n ^
fiskiðnaðarins um þessar rannsóknir, sérsta