Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 392
390
Árbók Háskóla íslands
íslensk málstöð 1991-1994
Islensk málstöð tók til starfa 1. janúar 1985
og starfar samkvæmt reglugerð nr. 159/1987.
Islensk málnefnd og Háskóli Islands reka
málstöðina í sameiningu samkvæmt 1. gr.
laga nr. 2/1990 um íslenska málnefnd (sbr.
einnig lög nr. 41/1989). Málstöðin er skrif-
stofa málnefndarinnar og miðstöð þeirrar
starfsemi, sem málnefndin hefir með hönd-
um. Enn fremur er málstöðin samstarfsvett-
vangur nefndarinnar og Háskóla Islands og
vinnur að hagnýtum rannsóknarverkeínum á
vegum forstöðumanns, sem jaíhíramt erprófess-
or í íslenskri málfræði í heimspekideild Há-
skólans með takmarkaða kennsluskyldu. Há-
skóli íslands leggur málstöðinni til húsnæði,
húsgögn og fleira, en íslensk málnefnd kostar
rekstur hennar að mestu leyti, eftir því sem fé
er veitt til á fjárlögum.
Húsnæði
Málstöðin hefir aðsetur í húsi Háskólans,
Aragötu 9, Reykjavík. Hún hefir allt húsið til
umráða nema kjallara. Þar nýtir hún þó eitt
lítið vinnuherbergi, sem Vísindafélag Islend-
inga hefir einnig haft aðgang að. Kyndingar-
klefi í kjallara var gerður upp 1994 og er nú
geymsla, og kjallaragangur er orðinn hálf-
fullur af útgáfubókum málnefndar. Málstöð-
ina skortir tilfinnanlega stærra húsnæði.
Starfslið
í málstöðinni starfa fastir starfsmenn,
lausráðið fólk og gestir. Fastir starfsmenn
hafa verið Baldur Jónsson, forstöðumaður,
prófessor, - var í rannsóknarleyfi 1991; og
málfræðingarnir Ari Páll Kristinsson, cand.
mag., frá 1. ágúst 1990 til ársloka 1992,
Baldur Sigurðsson, M. A., frá 1. ágúst 1993
til 31. júlí 1994, og Veturliði Óskarsson, mag.
art., frá 1. ágúst 1994. Skrifstofustjóri erKári
E. Kaaber, B. A.
Lausráðnir starfsmenn voru: Magnús
Gíslason, reiknifræðingur, tölvuvinnslustjóri
í hálfu starfi til 30. september 1991.
Veturliði Óskarsson, B. A., i tímavinnu
frá 18. septemberog fram undirjól 1991 við
undirbúning íðorðabanka (forstöðumaður
hafði til þess styrk úr Rannsóknarsjóði Há-
skólans). Veturliði hafði einnig umsjón með
tölvuvinnslu málstöðvarinnar frá 1. febrúar
1992 til ágústloka sama ár.
Jónína M. Guðnadóttir, cand. mag., rlt"
stjóri Flugorðasafns, vann við frágang orða-
safnsins samkvæmt samningi við flugntála-
stjóra til júlíloka 1992 og síðan á vegum mál-
stöðvarinnar frá 1. ágúst 1992 og fram í sept-
ember 1993, eftir því sem verkefnið krafðist-
Guðný Pálsdóttir, háskólanemi, var í fhllu
starfi frá 7. júlí til ágústloka 1992, lengst af
sem aðstoðarmaður ritstjóra Flugorðasafns.
Henni voru greidd laun úr Verkefnasjóði
námsmanna.
Björn Ellertsson, M. Sc., tölvunarfræð-
ingur, vann í tímavinnu frá 1. október 1992 tn
ársloka við undirbúning íðorðabanka, hatöi
umsjón með tækja- og hugbúnaðarkaupum
vegna hans svo og tölvuvinnslu stöðvarinnar,
var síðan áfram í tímavinnu frá 1. mars 1993,
uns hann varð að hætta um haustið vegna
veikinda.
Gestir: Magnús Snædal, cand. mag., rlt'
stjóri íðorðasafns lœkna, í hlutastarfi, saffl'
kvæmt samningi við Orðabókarsjóð læknate-
laganna.
Kirstín Flygenring, þjóðhagfræðingur, rit-
stjóri hagfræðiorðasafns, í hlutastarfi, saffl-
kvæmt samningi við Orðanefnd Félags vi
skiptafræðinga og hagfræðinga 1990 (haf 1
síðan vinnuaðstöðu í Odda, hugvísindahus1
Háskólans, 1991-1994).
Birgitta Lindgren frá sænsku málnefn
inni í Stokkhólmi var hér í norrænum starts
mannaskiptum um tveggja vikna skeið hau
ið 1991.
Ráðunautar: Auk starfsmanna í málsto
inni unnu nokkrir menn á hennar vegum
eða
málnefndarinnar sem málfræðilegir raðu
nautar Orðanefnda:
Halldór Halldórsson, prófessor, Or a
nefnd byggingarverkfræðinga.
Gunnlaugur Ingólfsson, orðabókarn
stjóri, Nefnd um háplöntuheiti 1990 og Or a
nefnd rafmagnsverkfræðinga til febrúarlo
1992 (og á eigin vegum til loka ársins).
Sigurður Jónsson frá Arnarvatni, can _
mag., Orðanefnd hagfræðinga fram í tfr 't1'
árs 1991; Bílorðanefnd til febrúarloka 1
(og á eigin vegum til loka ársins). ,
Kristján Árnason, prófessor, Orðane 11
Jarðfræðafélags íslands 1990.