Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 194
192
Árbók Háskóla íslands
stjóra. Guðrún lést í Reykjavík 24. nóvember
1994. Hún var stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1972, var kennari við gagnfræða-
skólann í Neskaupsstað 1972-1973, lauk
B. S. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla
Islands 1977 og námi í uppeldis- og kennslu-
fræðum 1978. M. S. próf í heilsugæslu-
hjúkrun tók hún við háskólann í Boston
1980. Á árabilinu 1977-1981 starfaði Guðrún
af og til sem hjúkrunarfræðingur á Landspít-
ala og Sjúkrahúsi Skagafjarðar, og á árunum
1983-1984 gegndi hún í afleysingum starfi
hjúkrunarfræðslustjóra og hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra á Landspítala. Hún var lektor í
námsbraut í iijúkrunarfræði við Háskóla
jslands 1980-1984 og dósent þar frá 1985 til
æviloka og átti þá drjúgan þátt í að móta
námsbraut í hjúkrunarfræði hér við Háskól-
ann. Guðrún var formaður stjórnar Náms-
brautar í hjúkrunarfræði við H. í. 1984-1986,
formaður námsnefndar 1986-1988, sat í
nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins um
framhalds- og endurmenntun hjúknmarfræð-
inga 1986-1987. Hún flutti Qölda fyrirlestra
um hjúkrun hérlendis og sat í ritnefnd Frétta-
bréfs um heilbrigðismál 1981-1985. Árið
1988 hóf Guðrún doktorsnám við háskólann
í Rhode Island i Bandaríkjunum, og hún
hafði rétt lokið samningu doktorsritgerðar
sinnar, þegar hún lést; doktorsgráða var
henni veitt að henni látinni (Hjúkrunarfrœð-
ingatal, Rvk. 1992; Kennaratal á tslandi, I-V,
1958-1988; Mbl, 4. og 6. desember 1994;
Fréttabréf H.Í., 2. tbl., 1995).
Þórarinn Guðnason
Gísli Þórarinn Guðnason, skurðlæknir,
fæddist 8. maí 1914 í Gerðum í Vestur-Land-
eyjum og lést í Reykjavík 17. febrúar 1995.
Foreldrar hans voru hjónin Guðni Guðnason,
bóndi í Gerðum, og Helga María Þorbergs-
dóttir. Þórarinn varð stúdent frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1934 og cand. med. & chir.
frá Háskóla íslands 1940. Hann hlaut
almennt lækningaleyfi 1941 og sérfræðileyfi
í handlækningum 1953. Framhaldsnám
stundaði Þórarinn fyrst á Rannsóknarstofu
Háskólans í meinafræði 1941-1942, síðan
við Hammersmithspítala í London og
Manchester Royal Infirmary og á spítölum í
London (Brompton, Queen Mary og Roe-
hampton). Þórarinn var læknir á Siglufirði
1945-1946 og við háskólaspítala í Minnea-
polis og í Winnipeg 1947-1948. Frá árinu
1949 var hann starfandi læknir í Reykjavík,
1949-1950 á Landspítala, á sjúkrahúsi Hvíta-
bandsins 1951-1968, Sólheimum 1954-1968,
og sérfræðingur var hann á skurðdeild Borg-
arspítalans 1968-1986. Þórarinn sat í stjórn
Læknafélags Reykjavíkur, í stjórn Skurð-
læknafélags íslands, formaður 1969-1971,
formaður læknaráðs Borgarspítalans 1973-
1975, sat í byggingarnefnd Domus Medica
og í borgarstjórn Reykjavíkur. Þórarinn var
formaður Siðaráðs landlæknis frá stofnun
þess 1987 og til ársins 1994 og sat áfram í
ráðinu til æviloka. Þórarinn stundaði
þýðingar erlendra bókmennta á íslensku og
önnur ritstörf, m. a. ritaði hann fasta dag-
blaðsþætti um læknisfræði fyrir almenning
um langt árabil. Þórarinn var heiðursfélagi
Læknafélags íslands. Hann var prófdómari
við læknadeild Háskóla íslands til fjölda ára
og kennari/leiðbeinandi læknanema í khn-
ískri handlæknisfræði (Læknar á tslandi,
Rvk. 2000; Mbl., 28. febrúar og 1. mars
1995).
Þórir Kr. Þórðarson
Þórir Kristinn Þórðarson, prófessor J
gamlatestamentisfræðum, var fæddur 1
Reykjavík 9. júní 1924 og lést þar 26. febrúar
1995. Hann var sonur hjónanna Þorbjargar
Baldursdóttur og Þórðar Nikulássonar, vél-
stjóra. Þórir lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1944, nam semitísk
mál við Uppsalaháskóla 1945-1946 og gu^'
fræði, grísku og semitísk mál við Árósarha-
skóla 1946-1949. Þaðan lauk hann fyrri hluta
prófi í guðfræði 1948. Hluta fil. kand. prófs 1
semitískum málum lauk Þórir við háskólann
í Lundi 1949 og cand. theol. prófi f,J
Háskóla íslands 1951. Þórir var við frarn-
haldsnám í guðfræði við háskólann í Chicag0
1951-1954 og 1957-1959, og þar varði hann
doktorsritgerð sína, The Form - Historica
Problem ofEx 34,6-7 árið 1959. Þórir var vi
fornleifagröft í Jórdaníu 1956, kynnti scr
félagslega þjónustu í Kaupmannahöfn 1
og var við framhaldsnám í Edinborg 19' '
1972. Þórir var skipaður dósent við gu
fræðideild Háskóla Islands 1. október 195