Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 358
356
Stjórn Endurmenntunarstofnunar 1991-
1994
Eins og áður sagði var árið 1991 sett á
stofn með lagabreytingu Endurmenntunar-
stofnun Háskóla íslands, sem rekin er með
sama hætti og Endurmenntunamefnd var áður.
Sérstök reglugerð var sett fyrir stofnunina, og
samkvæmt sérstökum samstarfssamningi, sem
byggir á reglugerðinni, standa að Endur-
menntunarstofnun auk Háskóla íslands,
Tækniskóli íslands (TÍ), Bandalag háskóla-
manna (BHM), Arkitektafélag íslands (AÍ)
(frá janúar 1993), Hið íslenska kennarafélag
(HIK), Tæknifræðingafélag íslands (TFÍ) og
Verkfræðingafélag íslands (VFÍ). Arkitektafé-
lagið sótti um aðild 1992, og var aðildin sam-
þykkt í október 1992, og átti það fulltrúa í
stjórn frá 1. janúar 1993. Á tímabilinu 1992-
1994 skipuðu stjóm Endurmenntunarstofnun-
ar eftirfarandi: Valdimar K. Jónsson (H. í.),
formaður, Auður Hauksdóttir (HÍK) ritari’
Erna Agnarsdóttir (TÍ), Gerður G. Óskarsdótt-
tr (H. I.), Guðleifúr M. Kristmundsson (VFÍ)
Hetmir Pálsson (H. í.), Höskuldur Frímanns-
son (H. I.), Logi Jónsson (H. í.), Páll A. Jóns-
s°n (H. I.), Sigurður Thorlacius (H. í.), Geir-
haröur Þorsteinsson (AÍ), Sólveig Ásgríms-
dóttir (BHM) og Stefán Ragnarsson (TFÍ).
Starfsfólk 1991-1994
Á skrifstofú störfuðu fjórir starfsmenn
árið 1991, en starfsmenn voru orðnir sex
1994, þar af voru tveir í hlutastarfi auk laus-
raðins aðstoðarfólks. Margrét S. Björnsdóttir
fekk leyfi til tveggja ára til að gegna öðrum
storfum frá ágúst 1993, og var Guðrún B.
Yngvadóttir, skrifstofústjóri stofnunarinnar,
staðgengill hennar á meðan. Annað starfsfólk
var: Anna Jóna Briem, fulltrúi, umsjónarmað-
ur innheimtu- og launamála (frá vori 1993),
Aslaug Thorlacius, fulltrúi (frá vori 1993)’
Fjóla Karlsdóttir, fulltrúi, Guðfinna Gröndal,’
fulltiúi, Guðrún C. Emilsdóttir, umsjónarmað-
ur fjárheimtu og tölvumála (frá janúar 1993).
Dagskrárstjórar (í hlutastarfi/ verktakar); Auð-
ur Hauksdóttir (svið: framhaldsskólakennar-
ar), Ingunn Sæmundsdóttir (svið: verk- og
tæknifræðingar og arkitektar), Tryggvi Sigur-
bjarnarson (svið: sjávarútvegsffæði, frá júní
1993) og Gísli Arason (svið: sjávarútvegs-
fræðt og rekstrar- og viðskiptanám, frá 1994).
_____________________Árbók Háskóla íslands
Umfang starfseminnar og fræðslusvið
1991-1994
Samnorrænt eins árs fjarnám hófst í
heilsuhagfræði 1991 undir stjórn Gavins
Moony, prófessors í Danmörku og Skotlandi.
Tveggja ára nám í handleiðslu fyrir sjúkra-
þjálfara í samvinnu við Tengsl sf. hófst
einnig 1991. Skipuð var nefnd haustið 1992
til að undirbúa nám í sjávarútvegsfræði. Unn-
ið var að undirbúningi tveggja missera frarn-
haldsnáms í rekstrarfræði og þriggja missera
náms í markaðsfræði. Vorið 1993 hófust 100
klst. námskeið í íslensku fyrir útlendinga í
samvinnu við heimspekideild. Tveggja ára
nám fyrir matsmenn hófst einnig í samvinnu
við matsmannafræðsluna. Samstarf við Lög-
mannafélag íslands hófst 1993, og var boðið
upp á röð af stuttum námskeiðum í lögfræði-
Nám í verðbréfamiðlun hófst haustið 1993 t
samstarfi við viðskiptaráðuneytið. Tveggja
ára nám í fjölskyldumeðferð hófst haustið
1993 svo og vettvangsnám fyrir framhalds-
skólakennara. Eins árs nám í sjávarútvegs-
fræði hófst í janúar 1994. Árið 1994 varboð-
ið upp á tveggja missera nám fyrir konur i
viðskiptagreinum, haldið í samstarfi við fe-
lagsmálaráðuneytið.
Umfang starfseminnar óx stöðugt, nám-
skeiðum og námsleiðum fjölgaði, kennslu-
stundamagnið óx, og var húsnæðið sprungi ,
stjórnin leitaði nýrra leiða í húsnæðismálum;
sótt var um byggingarleyfi á lóð við Tækm
garð. Ný stefnumótun var unnin fyrir Endur-
menntunarstofnun fyrir tímabilið 1993-1996-
Fundur norrænna endurmenntunarstjóra var
haldinn á íslandi í ágúst 1992, en endur-
menntunarstjóri hefúr sótt fundi þeirra. a
var 10 ára afmælishátíð Endurmenntunar-
stofnunar haldin 1. október 1993.
Þátttakendafjöldi á námskciðum
1991-1994
1991 4.000
1992 4.920
1993 5.500
1994 6.000