Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 272
270
Árbók Háskóla íslandjs
fæmi hvor annars og efla rannsóknir og
menntun á háskólastigi, efla starfsmenntun
og tengsl háskólastarfs og atvinnulífsins, og
auka þekkingu í greinum tengdum fiskeldi,
lagareldi, líffræði fiska, hrossarækt, hesta-
mennsku og ferðaþjónustu.
Til að ná ofangreindum markmiðum
munu Háskóli íslands og Hólaskóli leitast
við að koma á samtengdu rannsóknarnámi á
sameiginlegum fræðasviðum. Stúdentum,
sem fást við verkefnavinnu í B. S. eða M. S.
námi innan Háskóla Islands, verði gefinn
kostur á því að vinna verkefni undir leiðsögn
starfsmanna Hólaskóla. Stuðla skal að því, að
komið verði á hlutastöðum, þar sem kennslu
og rannsóknarstarfi er skipt á milli samnings-
aðila. Gera skal sérstaka samninga um
kennslu og þjálfun nemenda í grunn- og
framhaldsnámi, eftir því sem tilefni gefst til,
m. a. um samnýtingu námskeiða og gagn-
kvæma viðurkenningu náms. Haft verður
samráð um tækjakaup, þar sem það á við,
þannig að Ijármunir nýtist sem best. Gerður
verður samningur um samnýtingu á aðstöðu
(t. d. til tilrauna), tækjabúnaði og upplýs-
ingum. A grundvelli þessa rammasamkomu-
lags verður unnt að gera samninga um mark-
mið, skuldbindingar, kostnað og faglegar
kröfur í einstökum verkefnum.
Samstarfsnefnd háskólastigsins
19.01,95: Lagt fram afrit af bréfi Sveinbjöms
Björnssonar, rektors, formanns Samstarfs-
nefndar háskólastigsins, dags. 11. þ. m., til
menntamálaráðherra ásamt tillögum Sam-
starfsnefndar að drögum að lögum um háskóla.
16.11,95: Lagt var fram bréf mrn., dags. 1. þ.
m. Ráðuneytið skipaði Samstarfsnefnd
háskólastigsins til þriggja ára frá 1. nóvem-
ber 1995 að telja. Sveinbjörn Björnsson,
háskólarektor, var skipaður formaður nefnd-
arinnar.
20.02.97: Lagt fram bréf mrn., dags. 10. þ.
m. Rektorar og skólastjórar í Samstarfsnefnd
háskólastigsins boðaðir til íundar um drög að
frumvarpi til laga um háskólastigið, þar sem
farið verður yfir frumvarpsdrögin og leitað
eftir athugasemdum við þau.
Samstarfssamningur milli Háskóla ís-
lands og Iðntæknistofnunar
27.02.97: Hinn 27. febrúar sl. var undirrit-
aður samstarfssamningur milli Háskóla
íslands og Iðntæknistofnunar. Samningurinn
gerir m. a. ráð fyrir, að samningsaðilar muni
sem fyrst stofna til hálfrar kennslustöðu til að
efla samstarf og samskipti á sviði matvæla-
tækni. Jafnframt verður á árinu 1997 lögð
áhersla á að koma á atvinnutengdu rann-
sóknarnámi í matvælafræði og að því stefnt,
að tveir M. S. stúdentar starfi skv. ákvæðum
samningsins.
Samstarf við Flugmálastjórn, Flugkerfi
hf.
10.10.96: Þorgeir Pálsson, flugmálastjón,
kynnti þá rannsóknarsamvinnu, sem hafði 1
mörg ár verið milli Kerfisverkfræðistofu
Háskóla íslands og Flugmálastjórnar. Þessi
samvinna hafði getið af sér fullkomið ratsjar-
gagnakerfi, sem nýtt var á íslandi og taliö
var, aó flytja mætti út. Fyrir íundinum lá ti|-
laga að stofnsamningi og samþykktum fyrir
Rannsóknar- og þróunarfélag flugsamgangna
hf., sem áformað var, að yrði í eigu Háskóla
Islands og ríkisins. Tilgangur félagsins
var
að
efla rannsóknir, þróunarstarf og þekkingar-
öflun á sviði flugsamgöngutækni með því ;u’
vinna þróunarverkefni fyrir flugmálayfirvol°
á sviði flugsamgangna og markaðssetja
erlendis þá tækni, sem þróuð hafði veriö.
Rektor var falið að vinna frekar að undirbún-
ingi málsins.
15.05.97: Anna Soffia Hauksdóttir, prófessor
og forstöðumaður Kerfisverkfræðistom
Verkfræðistofnunar, kom á fund, en fyr|r
fundinum lágu drög að stofnsamningi fyrir
Flugkerfi hf. og hluthafasamningi Hásko a
íslands og íslenska ríkisins fyrir sama félag-
Samkvæmt stofnsamningi rann inn í félag1
hugbúnaður til flugleiðsögu og flugumfe11
arþjónustu, sem þróaður hafði verið á vegu111
Flugmálastjórnar í samstarfi við Hasko
íslands og metinn var á 21 m. kr. HluWr
Háskólans í þessum hugbúnaði var metmn
10,5 m. kr., og að viðbættu 500 þús. kr. h'alir
lagi í reiðufé nam hlutur Háskólans 11 w- •
íslenska ríkið lagði fram 10 m. kr. í reiðu e>
og varð hlutur Háskólans þá alls 20,5 m- r'
Samþykkt var, að Háskóli íslands yrði sro !]_
aðili í Flugkerfum hf. Samþykkt var
að til-
nefna Önnu Soffiu Hauksdóttur, prófess°r;
og Gunnlaug H. Jónsson, háskólaritara,
stjórn Flugkerfa hf.