Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.2004, Page 82

Tímarit lögfræðinga - 01.03.2004, Page 82
tryggingarfjárhæðar eða hlutfallstölu af tjóni vátryggðs auk ákvæða um sjálfs- áhættu vátryggðs, án þess að það eigi undir ófrávíkjanlegar reglur VSL. Verð- ur fjallað nánar um hvert þessara atriða í köflum 3.9.1 til 3.9.4 hér á eftir. Þrátt fyrir að þær reglur VSL sem hér eru til skoðunar séu um margt líkar og eigi það sammerkt að vemda vátryggðan með ófrávíkjanlegum skilyrðum fyrir því að félagið sé laust úr ábyrgð vegna sakar hans (í sumum tilvikum vátrygging- artaka eða þriðja manns) verða þær ekki allar settar á einn bás. Þykir því rétt að ræða nánar um mörk hlutlægra ábyrgðartakmarkana annars vegar og hvers flokks um sig hins vegar, þ.e. reglna VSL um rangar upplýsingar við samningsgerð, þau tilvik þegar vátryggingaratburðinum er valdið af ásetningi eða gáleysi, aukna áhættu og varúðarreglur. Verður það gert í köflum 3.5 til 3.8 hér á eftir. 3.4 Sönnunarbyrði Eyða mætti mörgum orðum í reglur um sönnunarbyrði þegar hlutlægar ábyrgðartakmarkanir eru annars vegar. Rúmsins vegna verður hins vegar látið nægja að tæpa hér á helstu reglum, en að öðru leyti vísast til skrifa fræðimanna um sönnun og sönnunarbyrði. Vátryggður ber jafnan sönnunarbyrðina fyrir því að atvik falli undir gildis- svið vátryggingar.105 A hinn bóginn ber félagið jafnan sönnunarbyrðina fyrir því að tjón falli undir undanþáguákvæði í skilmálum.106 Slysatryggður einstak- lingur ber þannig sönnunarbyrðina fyrir því að hann hafi lent í slysi, en félagið fyrir því að slysið hafi orðið með þeim hætti eða við þær aðstæður að það falli undir undanþáguákvæði í skilmálum, t.d. að slysið megi rekja til jónandi geisl- unar. I dönskum vátryggingarskilmálum er hins vegar að finna ákvæði þar sem sönnunarbyrðin er lögð á vátryggingartaka eða vátryggðan, t.d. á þann hátt að honum beri að sýna fram á að tjón verði ekki rakið til undanþeginnar áhættu. Af danskri dómaframkvæmd má sjá að félagið getur ekki borið fyrir sig slík ákvæði eftir orðanna hljóðan nema að fyrir fram megi telja líkur á því að tjón- ið verði rakið til hinnar undanþegnu áhættu.107 Með hliðsjón af framangreind- um meginreglum má hins vegar ætla að nokkuð ríkar kröfur yrðu gerðar til fé- lagsins við þá sönnunarfærslu. 3.5 Ábyrgðartakmarkanir og reglur VSL um rangar upplýsingar við samningsgerð. 4.- 10. gr. VSL Vart þarf að taka fram að félagið getur ekki borið fyrir sig skilmálaákvæði eftir orðanna hljóðan ef það gengur bersýnilega gegn ákvæðum ófrávíkjanlegra 105 Lvngse, (1994), bls. 184. 106 Schmidt, bls. 230; Drachmann Bentzon og Christensen, (1952), bls. 131 og (1954), bls. 619; Hellner, (1955), bls. 14 og (1965), bls. 111 og Sbrensen, (2002), bls. 343. 107 Sorensen, (2002), bls. 343 og Drachmann Bentzon og Christensen, (1952), bls. 131 (neðan- málsgrein 4). S0rensen nefnir á tilvitnuðum stað að aðstæður geti verið þess eðlis að fyrir fram megi telja líkur á því að rekja megi tjón til undanþeginnar áhættu, t.d. er tjón verður á stríðsátaka- svæði, sbr. dóm í U 1945:1073 (HD). 76
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.