Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 154

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 154
154 ÞRÓUN TEXTAGERÐAR FRÁ M IÐBERNSKU T I L FU L LORÐ INSÁRA og ætti að taka framfarakipp í takt við vitþroska og menntun á aldursskeiðinu sem þessi rannsókn spannar. Í köflunum hér að framan dró ég saman niðurstöður tölfræðilegrar greiningar á lengd texta, setninga og málsgreina í frásögnum og álitsgerðum eftir aldri. Áður en lengra er haldið er rétt að slá a.m.k. einn varnagla enn því þessar tölfræðilegu nið- urstöður gefa auðvitað ekki endanleg svör við rannsóknarspurningunum. Þær ber að taka sem vísbendingar sem fylgja þarf eftir með ítarlegri eigindlegri og megindlegri greiningu á fleiri hliðum gagnanna, svo sem orðaforða, textabyggingu o.fl. Að svo mæltu tel ég óhætt að segja að niðurstöðurnar styðji tryggilega tilgáturnar sem settar voru fram í upphafi, svo langt sem þær ná. Í fyrsta lagi er kerfisbundinn munur á frásögnum og álitsgerðum. Í grein um sagn- liði í fimm tungumálanna í samanburðarrannsókninni (Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Aparici, Cahana-Amitay, van Hell og Viguié, 2002) kom fram að strax 10 ára ber notk- un barna á tíðum, horfum o.fl. formdeildum sagna þess merki að þau gera skýran greinarmun á textategundunum tveimur. Í íslenskum frásögnum er þátíðin ríkjandi tíð, en nútíð í álitsgerðum. Í niðurstöðunum nú kom auk þess fram að frásagnirnar innihalda hlutfallslega minna af aukasetningum, einkum tilvísunar- og fallsetningum, og eru marktækt lengri en álitsgerðir. Allt bendir þetta til þess að frásagnir séu „auð- veldari“ textagerð en álitsgerðir, sem eru þéttofnari og setningafræðilega flóknari. Í öðru lagi staðfesta niðurstöðurnar að þróun máls og málnotkunar er langt í frá lokið við 11, 14 eða jafnvel 17 ára aldur. Gríðarmiklar breytingar verða bæði á lengd textanna og aðferðum við að tengja setningar saman í málsgreinar (samloðun) á því aldursbili sem rannsóknin spannaði. Auk þessara megindlegu vísbendinga var auð- séð á textadæmunum fjórum í inngangi að efnistök voru allt önnur og frumstæðari hjá 11 ára börnunum en hjá menntskælingunum. Sé lengd og aukasetningastuðull vísbending um gæði er síðan enn meiri gæðamunur á milli þeirra síðarnefndu og texta fullorðinna. Þessar fyrstu niðurstöður benda því eindregið til þess að færni í beitingu máls í flóknum boðskiptahlutverkum, eins og á reynir í þessari rannsókn, sé fjarri endapunkti þegar skólaskyldu lýkur og eigi sér blómlegan þroskaferil fram á fullorðinsár – að minnsta kosti hjá þeim sem halda áfram skólagöngu eftir grunnskóla og síðar í háskóla, eins og þátttakendur í rannsókninni höfðu gert. En hvenær verða þessar miklu breytingar og hvað býr þar að baki? Eins og við var búist varð stórt framfarastökk á milli 11 og 14 ára aldurs í öllum löndunum. Það kom hins vegar á óvart að litla sem enga breytingu var að sjá milli 14 og 17 ára aldurs í íslenska hópnum (a.m.k. á þeim hliðum málnotkunar sem hér voru til skoðunar) en hins vegar gríðarlega breytingu á milli menntskælinganna (17 ára) og fullorðnu textahöfundanna. Þetta mynstur í íslensku gögnunum er gerólíkt því sem fram kom í hinum löndunum þar sem alls staðar varð stór framfarakippur frá 13–14 ára til 16–17 ára aldurs (sjá m.a. Berman og Verhoeven, 2002; Berman og Nir-Sagiv, 2007). Eins og reifað var í inngangi eru unglingsárin tímabil þar sem bæði þroska- og menntunar- forsendur skapast fyrir framfarir í flókinni textagerð. Vitsmunaþroski og félagslegur skilningur taka stökkbreytingum og opna unglingnum smátt og smátt nýja og hlut- lægari sýn á sjálfan sig og heiminn umhverfis. Í og eftir áttunda bekk eru langflestir nemendur auk þess orðnir fluglæsir og hafa náð góðu valdi á ritmáli. Eins og vænta
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.