Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 175

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 175
175 HANNA RAGNARSDÓTTIR, HILDUR BLÖNDAL „Ég hef gaman af þessu, ég vil hvetja fólkið mitt og erlent fólk almennt ... ekki gefast upp, láta áhugann ráða ferð og draumana rætast. Þetta er allt í góðu lagi.“ Viðtöl við forstöðumenn námsbrauta og námsráðgjafa: Niðurstöður Eins og að framan greinir voru tveir forstöðumenn námsbrauta og tveir námsráðgjafar beðnir að meta stöðuna í málefnum erlendra nemenda. Helstu niðurstöður úr þeim viðtölum fara hér á eftir. Forstöðumenn og námsráðgjafar voru sammála um að upplýsingaflæði til nem- enda væri ekki nógu gott, nemendur þyrftu frá upphafi að vita hvaða þjónusta væri í boði fyrir þá. Forstöðumennirnir sögðust finna mismikið fyrir fjölgun nemenda af erlendum uppruna og skýrist það e.t.v. af því hversu misfjölmennar námsbrautirnar eru og hve ólík tengsl nemendur hafa af þeim sökum við forstöðumenn einstakra brauta. Forstöðumennirnir nefndu að vandamál sem upp kæmu tengdust gjarnan hópastarfi og að bæði erlendir og íslenskir nemendur kvörtuðu undan því. Forstöðu- menn og námsráðgjafar höfðu allir hugmyndir um hvað mætti bæta í þjónustu við nemendur og hvaða breytingar þessu tengdar væru æskilegar við KHÍ. Þeir nefndu að upplýsingar til nemenda, t.d. um þjónustu sem býðst, þyrftu að vera betri, svo og að upplýsingar um nemendur (sem koma fram í umsókn) þyrftu að vera aðgengilegar kennurum og námsráðgjöfum. Í umsókn þyrfti að koma fram móðurmál og þjóðerni nemanda. Allir voru sammála um mikilvægi þess að „hrista“ nemendur vel saman í upphafi náms og að slíkt nýttist kennurum jafnt sem nemendum. Einnig nefndu þeir að þjálfa þyrfti samskipti meðal nemenda, horfast í augu við ólíkar námsaðferðir og námsstíl nemenda og kynna kennurum kennsluhætti sem henta fjölbreyttum nem- endahópum. Einnig kom fram að oft væri litið á fjölbreytileika nemendahópa sem vandamál. Þá var nefnt að hafa mætti viðtöl við nemendur í upphafi náms til að at- huga stöðu þeirra og þarfir, einnig inntökupróf og viðtöl í kjölfarið. Loks var nefnt að mikilvægt væri að taka fólk ekki inn í skólann á röngum forsendum. Skýr skilaboð væru nauðsynleg í upphafi um námið, tungumál, kröfur og fleira. UMRÆÐA: STAÐA OG REYNSLA ERLENDRA NEMENDA VIÐ KENNARAHÁSKÓLA ÍSLANDS Úrtakið í þessari rannsókn á stöðu og reynslu erlendra nemenda við KHÍ er lítið en getur þó gefið vísbendingar um stöðu erlendra nemenda við háskóla á Íslandi. Eigind- legar viðtalsrannsóknir sem þessi gefa kost á nálægð við þátttakendur þar sem ná má betur fram reynslu einstaklinga og sjónarmiðum en aðrar aðferðir leyfa. Ekki er vitað til þess að fyrir liggi sambærilegar rannsóknir við aðra háskóla á Íslandi, en áhugavert væri að gera samanburð á stöðu og reynslu erlendra nemenda við aðra háskóla. Í rannsókninni kemur fram að aðgengi erlendu nemendanna að námi við skólann hefur verið gott. Þess ber þó að geta, að margir þátttakendanna hafa lokið háskólanámi áður og eru því mjög sterkir umsækjendur þegar kemur að því að meta umsóknir. Þegar í námið er komið blasir nokkuð önnur mynd við. Þar kemur fram að lítið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.