Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 198

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 198
198 Kennaramenntun er samstarfsverkefni háskóla og skólanna sem kennararnir eiga eftir að starfa við. Þetta þarf að viðurkenna í verki og það er fráleitt að líta á skólana aðeins sem æfingabúðir sem beri litla eða enga ábyrgð á kennaramenntuninni. Skól- arnir eiga að taka fulla ábyrgð á að þar fari fram markvisst kennaranám og að allir leiðsagnarkennarar hljóti til þess sérstakan undirbúning; hugtökin viðtökukennari og æfingakennari lýsa nokkuð vel þessari úreltu æfingabúðaafstöðu. Val á skólum sem taka þátt í þessu samstarfi þarf að vanda og það er mikilvægt að byggja upp metnað í skólum til að sinna og taka ábyrgð á kennaramenntun. Það þarf að felast skýr fagleg viðurkenning í því fyrir skóla að vera samstarfsskóli um kennaramenntun og sama gildir vitaskuld um að viðurkenna mikilvægi þeirrar leiðsagnar sem þar fer fram, hún er vandasöm og henni fylgir ábyrgð. Háskóli Íslands hefur um nokkurra ára skeið unnið eftir líkani að starfsþjálfun sem mótað var í samstarfi við hóp okkar reyndustu leiðsagnarkennara; afrakstur þess er dæmi um þessa nánu samvinnu og ábyrgð sem ég kalla hér eftir. Samkvæmt þessu líkani eru valdir til samstarfs framsæknir skólar; talað er um heimaskóla nemans enda dvelur hann þar vikulega meira og minna meðan á náminu stendur (að undanteknum fyrstu og síðustu vikum skólaársins). Við það vinnst einkum tvennt: Neminn kynnist skólastarfi á breiðum grundvelli en er um leið í stöðugum „samræðum“ við fræðin. Hann þarf að vinna verkefni sem kalla á ígrundun og greiningu á því sem gerist, tengja skólastarfið jafnóðum við það sem hann er að lesa í fræðunum. Háskólakenn- arinn fylgist þannig með því sem nemendur eru að fást við úti í skólum og getur því sjálfur betur tengt fræði sín við skólastarfið. Ég tel raunar nauðsynlegt að þetta sam- starf gangi mun lengra en við höfum haft bolmagn til fram að þessu og að háskóla- kennarar sem bera ábyrgð á kennslufræðinni hafi beinlínis það verkefni að vera 1–2 daga í viku úti í skólunum og starfi þar með leiðsagnarkennurum og nemum við að greina og meta bæði nýjar og þrautreyndar leiðir sem nemarnir eru að prófa sig áfram með. Endurmenntun sem felst í stuttum, stökum námskeiðum sem einn til tveir kennarar úr hverjum skóla sækja er að mínu mati úrelt fyrirbæri enda benda bæði innlendar og erlendar rannsóknir til þess að slík námskeið skili litlu. Það er þess vegna for- gangsverkefni að hugsa endurmenntun upp á nýtt, leggja áherslu á endurmenntun sem mikilvægan þátt skólaþróunar. Þáttur í slíkri endurskoðun er að finna leiðir til að tengja símenntun grunn- og framhaldsskólakennara sem í dag er rekin sitt í hvoru lagi. Vegna þess hve fjölbreytt og margbrotið skólastarf er tel ég afar brýnt að kennara- menntunarstofnanir bjóði fjölbreytt námsval og nemendur eigi kost á verulegri sér- hæfingu á mörgum mismunandi sviðum, bæði innan einstakra stofnana og á milli stofnana. Lenging kennaranáms í fimm ár gefur aukna möguleika á þessari sérhæf- ingu en hún er ekki sjálfgefin og að henni þarf að huga sérstaklega. Ég er sannfærð um að skóli sem hefur innan sinna vébanda kennara með ólíkan bakgrunn og mismun- andi sérhæfingu veldur betur þeim flóknu verkefnum sem leysa þarf innan skólans en ef allir kennararnir eru sprottnir úr nokkurn veginn sama jarðveginum. Enginn skóli er betri en það fólk sem þar starfar og því er óhjákvæmilegt að velta V IÐHORF
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.