Hugur - 01.06.2011, Page 21

Hugur - 01.06.2011, Page 21
Við erum stödd í flækju veruleikans 19 það nægir ekki að rekja ábyrgð til einstaklinga) til þess að gera sér sem sannasta mynd, leiða sannleika fram. Heimspekingar hafa stundum talið sig vera hlutlæga áhorfendur, en við erum alltaf þátttakendur vegna þess að sýn okkar er skilyrt af stöðu okkar, hagsmunum og viðhorfum. Þess vegna finnst mér heiðarlegra að tala um að heimspekin geti verið haldin því sem Nietzsche kallaði vitsmunalega æru, fremur en að vera hlutlæg og þannig hlutlaus sýn á viðfangsefnið hverju sinni. Við erum ævinlega „staðsett" sem þekkingarverur, eins og Sandra Harding hefur skýrt svo vel í þekkingarfræði sinni um hvernig staðsetning mótar þekk- ingu. Við þurfum að vera okkur meðvituð um staðsetningu okkar og viðurkenna að sjónarhorn okkar er takmarkað. Hvað varðar aftur á móti stöðu heimspekings sem aktívista og fræðimanns, þá er margt fleira um það að segja. Það er vandrat- aður meðalvegur þarna. Hannah Arendt hefur ijallað öðrum betur um það með aðgreiningu sinni á vita activa og vita contemplativa, eða lífi okkar sem borgara í samfélagi og lífi ígrundunar. Igrundunin er ævinlega svolítið á hliðarlínunni, hún verður að halda ákveðinni fjarlægð á það sem er að gerast en um leið verður ígrundunin að geta byggst á þekkingu á raunverulegum aðstæðum. Heimspeki má ekki þjást af reynsluleysi eigi hún að geta verið vitur um veruleikann. Mér hefur alltaf fundist Sókrates flottur að því leyti sem ég held að hann hafi í senn búið yfir götuvisku (hann var jú úti á götu að tala við fólk) og vísdómi um eilíf íhugunarefni heimspekinnar sem kreijast næðis og tíma til ígrundunar. I lok síðasta árs gafst pú ásamt premur öðrum heimspekingum1 tit bók um heimspeki fieðingar og dauða. Hvers vegna tókupiðpetta efnifyrir? Þessi bók er afrakstur nokkurra ára samstarfs fjögurra kvenheimspekinga á Norðurlöndum, þeirra Söru Heinámaa, Robin May Schott, Vigdisar Songe- Moller og mín. Við höfiim allar fúndið hjá okkur þörf til að bregðast við þáttum í ráðandi mannskilningi heimspekihefðarinnar, og einn af þeim þáttum er afstaðan til dauðans. Allt frá dögum Sókratesar hefur vestræn heimspekihefð lagt mikla áherslu á að heimspekileg grunnafstaða feli í sér vitund um endanleika og dauða. Sókrates sagði jú sjálfúr að heimspeki væri æfing fyrir dauðann og þetta viðhorf nær inn í heimspeki 20. aldar, og birtist t.d. í hugmynd Heideggers um veru-til- dauða sem kjarna þess að vera það sem hann kallaði eiginlega tilvist. Vissulega viljum við ekki gera lítið úr því að dauði og endalok skipta miklu máli fyrir til- vist okkar. Hins vegar veltum við fyrir okkur hvort að upphaf og fæðing hafi verið vanmetin fyrirbæri í heimspekihefðinni með tilliti til merkingar þeirra fyrir mannlega tilvist. Hannah Arendt benti á þetta á 20. öld, en hún skilgreindi fæð- ingarleika sem þá staðreynd að það fæðast alltaf nýjar manneskjur og þess vegna endurnýjar heimurinn sig en í því felst í senn ný von og ný áhætta. Við í okkar rannsóknum leituðumst við að skoða samband beggja hugtaka en ekki við það að reyna að skipta út merkingu fæðingar fyrir merkingu dauðans sem heimspeldlega 1 Robin May Schott (ritstj.), Sara Heinamaa, Vigdis Songe-Moller og Sigridur Thorgeirsdottir, Birth, Death, andFemininity: Philosophies ofEmbodiment. Bloomington og Indianapolis: Indiana University Press, 2010.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.