Hugur - 01.06.2011, Side 32

Hugur - 01.06.2011, Side 32
30 Henry Alexander Henrysson ari heimsmynd. Alþekkt er til dæmis sú fuUyrðing hans að mannshugurinn hafi frá náttúrunnar hendi ekkert til að bera sem getur stjórnað mati hans og við- brögðum við umhverfi sínu. Forsendur stærðfræði, rökfræði og siðferðis verða til við reynslu samlcvæmt honum.21 Skynreynslan sjálf var okkar eini kennari.22 Descartes hafði skrifað um hvernig við getum ekki annað en laðast að sannleika og hinu góða þar sem okkur sé gefinn sá hugur sem hefur aðgang að slíkum lögmálum. Náttúran, í ákveðnum sldlningi, leiðir okkur að hinu rétta og góða. Hún afhjúpar sjálfa sig við það að einhver nálgast hana á réttan hátt.23 Hume hefur ekki uppi jafntilkomumildl orð, en samkvæmt honum virðist okkur vera, á náttúrulegan hátt, gert að laðast að ákveðnum skoðunum svo eðlilega að jafnvel stöndugustu efarök fái ekld haggað þessum skoðunum. Nú má vera að margir hvái yfir því hvers vegna sé verið að draga þessa mynd fram þar sem slíkar hugleiðingar hljóti að hafa horfið í kjölfar upplýsingarinnar og varla verið endurvaktar síðar. Tvenns konar röksemdir heyrast gjarnan gegn siðferðilegri náttúruhyggju í þessum anda sem er býsna fjarskyld þeirri frænku sinni og nöfnu sem hefur tíðkast á tuttugustu öld. Annars vegar má benda á þá gríðarlega áhrifamiklu athugasemd Humes sjálfs að margir heimspekingar geri sig seka um óréttmæta yfirfærslu milli hugmynda þegar þeir færa sig frá stað- reyndum til boða: Að heimspekingar eigi það til að segja okkur hvernig náttúran ætti að vera fremur en að útskýra hvernig hún er.2A Náttúruhyggjan sem birtist í þessum orðum þarf reyndar ekki að stangast svo mjög á við hina sem ég hef hér verið að segja frá. Það er einungis þegar maður skilur náttúruna aðeins sem sam- ansafn staðreynda sem Hume hefur rétt fyrir sér (ef það er þá þetta sem hann er að segja). Náttúran getur hins vegar haft ákveðið boðvald án þess að segja nokkuð til um það hvernig hún sjálf cetti að vera. Gildishlaðinni heimsmynd fylgir gjarnan hugsun um það hvernig hún gæti verið. Aðalatriðið er að margir þeir heimspek- ingar sem talið er að Hume hafi talað um voru ekki að leiða neitt af helberum staðreyndum. Þvert á móti voru þeir að velta upp siðaboðum út frá athugunum á því hvað se'gott', til dæmis í hverju megi finna samræmi í innra eðli og þess sem vísað er til sem „framvindu náttúrunnar". Einnig er hægt að benda á ekki síður áhrifaríka athugasemd um hinn tilfaUandi veruleika siðferðislífsins, en hún er sú augljósa staðreynd að við gerum víst engu síður það sem slæmt er en gott, að því er virðist í boði náttúrunnar. Menn hafa á öllum tímum haft, að því þeir segja, hina ágætustu ástæðu, sprottna af náttúru- legum hneigðum, til þess að breyta eins og þeir gerðu án þess að afleiðingarnar hafi vakið trú, von eða kærleika með nokkrum manni, eða gætu mögulega talist 21 Sjá Locke 2000:17-20. 22 Locke hafði raunar eins og margir raunhyggjumenn fjarska lítinn áhuga á „reynsluheiminum". Hjá honum verður reynsla þunnt hugtak sem nær yfir lítið annað en beina skynreynslu. Leibniz sagði raunhyggjumenn horfa framhjá þeim skynjunum sem þeir verða ekki áskynja. 23 Hafa ber í huga að Descartes var ekki að lofa öruggri vitneskju um það sem náttúran kenndi honum, a.m.k. ekki í sama skilningi og stærðfræðileg vitneskja er skýr og greinileg. Raunar má lesa Descartes fremur sem efahyggjumann um fjölmörg efni heldur en sem þann rökhyggjumann sem mönnum er tamt að sjá fyrir sér. Honum var meinilla við að tjá sig um hvernig hlutir eru „í raun og veru“, óháð því hvað við, sem takmarkaðar verur, gemm vitað um þá. 24 Hume 2001: 302.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.