Hugur - 01.06.2011, Page 40

Hugur - 01.06.2011, Page 40
3« Björn Þorsteinsson og/eða neindin birtist á einhvern hátt. Kjarninn í hugsun Hegels er einmitt þessi: það liggur í eðli veruleikans að birtast, eða, orðað á annan hátt, sannleikurinn er ekkert án birtingar sinnar.9 Engin reynd án sýndar. * * * Reynum nú að koma okkur aftur niður á jörðina, eins og sagt er, eða freistum þess í það minnsta að finna Pál aftur þar sem hann er staddur í Oskju og tekst á við hinstu rök. Nú skiljum við ef til vill betur hvers vegna reynslan af Öskju varð honum tilefni til vangaveltna um heildir og tengsl. Sé veran hrein heild, þá eru engin tengsl möguleg. Því tengsl eru á milli í það minnsta tveggja hluta, eða þátta af einhverju tagi, sem þá mætti kalla A og B. Sé veran órofin heild, samfelld og heilsteypt, þá er heldur enginn greinarmunur - þá er ekkert A og ekkert B, heldur bara eitt stórt X. Og raunar gæti þetta stóra X alveg eins talist lítið, raunar svo lítið að það mælist ekld - það gæti eins heitið 0, neindin. Það er allt eða ekkert. En eins og við leiddum í ljós með fulltingi Hegels er málum einmitt ekki þannig háttað - ekki í okkar veröld, í þeim veruleika sem við lifum og hrærumst í.10 I þessum heimi okkar, veröldinni í skilningnum „heimur manna“ eða kannski „heimur hinna hugsandi vera“, er annað og meira en X (eða 0), þar blasa við ófikir hlutir og verur og heildir sem eru einmitt ekki af toga hreinnar veru heldur eru þær afmarkaðar heildir innan veruleikans sem mynda tengsl sín á milli, og eru til í þessum tengslum, þiggja afmarkaða veru sína af þeim. Og á sama hátt og Hegel lánaðist að mjaka hugsuninni úr sporunum í upphafi Rökfrœöinnar tókst Páli að komast frá Öskju með hugleiðingar sínar í farteskinu og, það sem meira er, honum tókst að færa þær í orð, tjá þær og miðla þeim til annarra hugsandi vera. I þessu afreki Páls felst, eðli málsins samkvæmt, að honum tókst að flokka upp þá heildrænu reynslu af öllu og engu sem Askja olli honum, og gera þannig þá reynslu af „sjálfstæðri, hlutlægri veröld" (14), sem Askja er tákn fyrir eða ávísun á, sjálfum sér og öðrum skiljanlega. Engu að síður, og í einhvers konar mótsögn við sjálfan sig, finnur Páll sig knúinn til að skýra fyrir lesandanum að Askja, sem þessi hlutlæga veröld, sé eftir sem áður „sjálfstæð, ósnortin, ósnertanleg“ og búi „handan þess sem mann[s]- höndin og mannshugurinn geta náð tökum á“. Jafnframt er hún „óstaðsetjanleg í mannheimi, nema sem tákn um veröld utan, handan allrar menningar, og er um leið grunnur hennar, undirstaða eða forsenda" (15). Við getum með öðrum orðum talað eins og við viljum um þann hlutlæga veruleika sem hér er í húfi - við getum skrifað heilu bindin af „Hugleiðingum við Öskju“ og hugleiðingum um „Hugleiðingar við Öskju“ og svo framvegis út í það óendanlega - en við náum samt aldrei fyllilega tökum á þessum hlutlæga veruleika, við getum aldrei komið 9 Hegel orðar þessa hugsun víða í verkum sínum, til dæmis í innganginum að fyrirlestrum sínum um fagurfræði: „[...] sýndin sjálf er eðlinu nauðsynleg, sannleikurinn væri ekki ef hann sýndist ekki og birtist, ef hann væri ekkifyrireinhvem, og jafnframtfyrir sjáffan sig og að auki fyrir and- ann yfirhöfiið“ (Hegel 1970: 21). ro Tökum eftir því að það er í þessum skilningi sem Hegel er fyrirbærafræðingur, eða í það minnsta forveri fyrirbærafræðinnar — hann vill beina sjónum að því hvernig hlutirnir birtast sannarlega í þessum heimi, en lætur handanheima eða Hlutinn-í-sjálfum-sér (nær alveg) lönd og leið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.