Hugur - 01.06.2011, Page 72

Hugur - 01.06.2011, Page 72
7° Svavar Hrafn Svavarsson aðeins að velja þá hluti sem eru í samræmi við náttúruna, jafnvel þó að valið sé til þess að öðlast. Ábyrgð og örlög Stóumenn aðhylltust örlagahyggju, nauðhyggju, löghyggju. Skipan náttúrunnar, sem vitringurinn skilur og lifir eftir, er ákveðin og lögbundin. Ollu sem gerist, öllu sem við manneskjurnar gerum, jafnvel viðhorfum okkar, er skapað að gerast í óbrotinni keðjuverkan orsaka og afleiðinga. Þessa skipan kalla stóumenn örlög, sem eru fullkomlega skynsamleg og góð. Það tilheyrir viskunni að viðurkenna og jafnvel fagna stöðu manns í skipan heimsins, hvað sem á gengur: „[Zenon og Krýsippos] héldu því fram að allt væri örlögum háð og notuðu eftirfarandi h'k- ingu. Þegar hundur er bundinn við kerru er hann dreginn af henni og fylgir henni ef hann vill fylga. Þannig fer hans eigin sjálfráða athöfn saman við nauðsyn. En ef hann vill ekki fylgja kerrunni, neyðist hann eigi að síður til þess. Þannig er einnig málum háttað með manneskjur. Þótt þær vilji ekki fylgja, neyðast þær eigi að síður til að fara þangað sem fyrir þeim liggur að fara.“40 Ljóslega er áhrifavaldi okkar stefnt í hættu. Ef athafnir okkar eru ekki undir okkur sjálfum komnar heldur nauðsyn og örlögum, í hvaða skilningi berum við þá ábyrgð á þeim? Og hvers vegna ættum við yfirleitt að ígrunda og ákveða síðan, fyrst hvað sem við gerum hlýtur lögum samkvæmt ávallt að gerast? Þetta voru svonefnd letingjarök. Því var svarað til að ígrundun okkar sé einnig örlagabund- in. Nú telst ábyrgð manneskju iðulega krefjast þess að henni sé frjálst að gera annað en hún gerir. Þetta viðurkenndu stóumenn en sögðu samt ekki skilið við nauðhyggju sína. Þeir gerðu greinarmun á tvenns konar frelsi. Þeir höfnuðu því eðlilega að við byggjum við það valfrelsi sem gerir okkur kleift að gera eitthvað annað en við gerum í raun. Hins vegar búum við yfir ákveðnu sjálfræði, sem gerir okkur kleift að samþykkja vissa breytni án ytri þvingunar, og sérhver athöfn okkar krefst samþykkis okkar. Þetta sjálfræði, segja þeir, færir okkur ábyrgð á gerðum okkar. Kenndir Ráðandi hluti mannssálarinnar er alfarið skynsamur. Þessi skoðun stóumanna gengur í berhögg við flestar aðrar kenningar um sálina, sem gera greinarmun á skynsemis- og skynleysishluta. Þegar við breytum á svig við skynsemina, segja þeir, er það vegna ófullkominnar skynsemi. Kenndir eða tilfinningar (náOri) eru rangir dómar sem við fellum vegna mistaka skynsemi okkar. Ljóslega á að upp- ræta þær. Dyggðug manneskja hefur ekki kenndir. Þetta er harkalegt viðhorf.41 Kenning stóumanna gerir ráð fyrir því að frá barnæsku hrífi heimurinn mann- eskjuna með því að birtast á alls kyns hátt, með alls kyns skynmyndum, sýnd- 40 Hippolýtos, Afsönnun allrar viHutrúar 2.21. Um stóíska örlagahyggju, sjá Frede 2003:179-205. 41 Um kenndaleysi stóíska vitringsins, sjá Striker 19963: 270-80.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.