Hugur - 01.06.2011, Page 73

Hugur - 01.06.2011, Page 73
7i Stóísk siðfrœði og náttúruhyggja um. Vegna frumhvata sinna og sjálfsbjargarviðleitni sem náttúran hefur gætt manneskjuna, og síðar vegna annarra hvata, knýja sumar sýndir manneskjuna til athafna. Þetta eru sýndir þeirra hluta sem eru í samræmi við náttúruna. I full- orðnum skynsemisverum eru þessar sýndir skynsamlegar í þeim skilningi að orð- um má koma að þeim; þær hafa yrðanlegt innihald.Til að manneskja breyti (eða sé knúin til að breyta) á ákveðinn hátt, þarf hún fyrst að samþykkja sýndina. Eftir samþykkið getur manneskjan breytt. Samþykkið sjálft er hins vegar viðfangsefni skynseminnar. Ef vel á að vera samþykkir skynsemisveran aðeins þær sýndir sem stóumenn nefndu þekkjanlegar. Þær eru skýrar og greinilegar birtingarmyndir sjálfs viðfangsins. Að öðrum kosti ætti manneskjan að fresta dómi. Geta mann- eskjunnar til að samþykkja eða fresta dómi gæðir hana ábyrgð á eigin athöfnum. Fyrst kenndir eru hvatir sem velta á því að manneskjan samþykki sýndir, sam- þykki það sem kemur henni einhvern veginn fyrir sjónir, þá eru kenndir skyn- semisdómar, en þó af ákveðnu tagi: „kennd er öfgafull hvöt sem óhlýðnast skip- unum skynseminnar, eða hreyfing sálarinnar sem er óskynsamleg og andstæð náttúrunni."42 Ástæðan fyrir því að kenndir eru rangir dómar er sú að þær telja hlutlausu viðföngin til gæða, jafnvel þau sem eru í samræmi við náttúruna, en hin sem eru andstæð náttúrunni telja þær til böls. Löngun og ánægja eru dómar um að eitthvað gott sé innan seilingar eða til staðar (t.d. heilbrigði), en ótti og angist eru dómar um að eitthvað slæmt sé yfirvofandi eða orðið (t.d. heilsuleysi). Þar sem ekkert er gott eða slæmt nema dyggð og löstur, hljóta kenndirnar að vera rangir dómar. Ofgarnar sem einkenna kenndir má skýra með því að skynsemin glatar völdum. Krýsippos notar líkingu: „Þegar einhver gengur í samræmi við hvöt sína hreyfast leggirnir ekki á öfgafullan hátt heldur í samræmi við hvötina, þannig að hann getur numið staðar eða beygt þegar hann vill. Þegar fólk hleypur í samræmi við hvöt sína er þessi ekki lengur raunin, heldur tekur hreyfingin fram úr hvötinni, þannig að þeir æða áfram ófærir um að beygja um leið og þeir byrja. Eitthvað svipað, held ég, gerist með hvatir þegar þær fara fram úr því sem skyn- semin tiltekur."4-’ Þeir bættu því við að vitringurinn, sem lætur ekki hlutlausu við- föngin hafa þessi áhrif á sig, finnur til einhvers sem í fyrstu mætti halda að líktist kenndum, nefnilega góðum geðhrifum. Hann óttast ekki heldur er hann varkár, finnur ekki til ánægju heldur gleði, óskar sér en langar eklú. Meginmunurinn felst í því að þessi geðhrif vitringsins beinast aðeins að því sem er raunverulega gott og vont. Þess vegna eru þau öfgalaus og skynsamleg. Þessi hugmynd stóumanna um kenndir er eðlilegt framhald af kenningu þeirra um hið góða, að ekkert sé gott uema dyggð og ekkert slæmt nema löstur, allt annað hlutlaust. Geðhrifin góðu eru hins vegar ljóslega tilraun þeirra til að koma til móts við þá sem finnst að líf vitringsins hljóti að vera í einhverjum skilningi ánægjulegt. 42 Stobajos 2.88. 43 Galenos, Um kenningar Hippókratesar og Platons 4.2.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.