Hugur - 01.06.2011, Page 101

Hugur - 01.06.2011, Page 101
Endurheimtfegurðarinnar á tímum náttúrunnar 99 umhyggju fyrir lífi okkar í heiminum, eins og Páll Skúlason hefur fjallað um í bók sinni Hugleiðingar við Ofyfy.James Hillman kemst að áþekkri niðurstöðu. Hann spyr hvað geti hreyft þannig við okkur að við getum orðið áskynja og meðvituð um ástand vistkreppu og geti jafnframt hvatt okkur til dáða til að breyta lífi okkar til að bregðast við þessari kreppu. Er það siðferðileg skyldutilfinning í anda Kants, undrun yfir mikilleika náttúrunnar og virðing fyrir henni, eða jafnvel sektarkennd vegna ótta um að menn eyðileggi jörðina og eyði þannig sjálfum sér? Hillman kemst að þeirri niðurstöðu að það sé einungis ástin sem geti hvatt okkur til þess að breyta þeim viðhorfúm okkar til náttúrunnar sem hafi leitt til vistkreppu. „Að- eins ástin dugar til, þrá til heimsins" og að hans mati er ástleysi til heimsins rótin að vistkreppu samtímans.19 Fagurfrœði ogfyrirbærafræði Þessar hugmyndir um ást og tengsl byggja á reynslu af fegurð og þá erum við komin að tengslum milli fagurfræði og fyrirbærafræði. Berleant bendir á að fagur- fræði og fyrirbærafræði deili tveimur megináherslum: áherslunni á það að fresta öllum fyrirframgefnum viðhorfúm og skoðunum, og áherslunni á skynjunina. Þetta er einmitt það sem Merleau-Ponty benti á í skrifúm sínum um Cézanne og fleiri listamenn; fagurfræðileg nálgun Cézanne sem fólst í því að skynja bara til þess að skynja og reyna að festa einhverskonar hreina skynjun á veruleikanum á striga á margt sameiginlegt með fyrirbærafræðilegri nálgun. Bein skynreynsla af þessu tagi er þannig sú skynjun sem liggur öllu til grund- vallar, í henni felast frumstæðustu kynni okkar af veruleikanum, áður en við náum að hugtaka hann og mynda okkur skoðanir um hann. En þessi kynni, frumstæð sem þau eru, hafa áhrif á líðan okkar, og sú vellíðan eða vanh'ðan sem reynslan veitir okkur er einn helsti áhrifavaldur og drifkraftur hegðunar og breytni. Gæði skynreynslunnar verða á þennan hátt fyrsti og síðasti mælikvarðinn á velgengni samfélaga.20 Þannig tengir Berleant hið fagurfræðilega við hið félagslega: með því að benda á að það hvernig við skynjum umhverfi okkar, landslagið sem við dvelj- um í, hefur mikilvæg áhrif á hfsgæði okkar, hvort sem það er náttúrulegt landslag eða borgar/bæjarlandslag.21 Ef fegurð er það nafn sem við gefum upplifun af jákvæðum tengslum okkar við hvert annað og umhverfi okkar, ætti hún að gegna veigameira hlutverki þegar við tökum ákvarðanir um það hvernig aðstæður við sköpum í gegnum umhverfis- skipulag. Þar fyrir utan þarf að leggja áherslu á að það þurfi að þroska með fólki fegurðarskyn í skólum og uppeldi. Fegurð og ljótleiki eru ekki lengur skilgreind út frá yfirborðseiginleikum, heldur út frá þeim tengslum sem fagurfræðileg skynjun 19 Hillman 1998: 264. Hannah Arendt er þeirrar skoðunar að pólitísk kreppa einkennist af ástleysi til heimsins og að amor mundi sé leið til þess að vinna sig út úr henni og endurskapa vettvang stjórnmála. 20 Berleant 2010: 9-ro. 21 Slík ábending birtist raunar einnig í Evrópska landslagssáttmálanum, en þar er hugtakið landslag notað til þess að fanga þessa vídd mannlegrar reynslu og gilda.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.