Hugur - 01.06.2011, Side 121

Hugur - 01.06.2011, Side 121
Hvað erfrumspeki? 119 með þessum hætti, er dregin inn í spurninguna um neindina, þá hlýtur hún að vera orðin að vanda fyrir tilstilli spurningarinnar. Einfaldleiki og skerpa hinnar vísindalegu tilveru felst í því að hún beinir atferli sínu með sérstökum hætti að því sem er og einungis að því. Vísindin vilja varpa neindinni fyrir róða á yfirlætislegan hátt. Nú verður aftur á móti ljóst með spurn- ingunni um neindina, að þessi vísindalega tilvera er aðeins möguleg ef hún heldur sér þegar út í neindina. Hún skilur fyrst sjálfa sig í því, sem hún er, ef hún varp- ar ekki neindinni fyrir róða. Meint skarpskyggni og yfirburðir vísindanna verða hlægileg ef þau taka neindina ekki alvarlega. Aðeins vegna þess að neindin er opinber geta vísindin gert það sem er að viðfangsefni rannsókna. Aðeins ef tilvist vísindanna kemur úr frumspekinni, geta þau í sífellu endurheimt eðlislægt hlut- verlt sitt, sem er ekki fólgið í söfnun og flokkun upplýsinga, heldur í síendurtek- inni afhjúpun heildarsviðs sannleikans í náttúrunni og sögunni. Einungis vegna þess að neindin er opinber í grunni tilverunnar, getur hinn fullkomni framandleiki þess sem er komið yfir okkur. Aðeins ef framandleiki þess sem er þjarmar að okkur, vekur það og dregur að sér undrunina. Aðeins á grundvelli undrunarinnar - þ.e. opinberunar neindarinnar - fæðist spurningin „hvers vegna?“. Aðeins vegna þess að þetta „hvers vegna“ er mögulegt sem sh'kt, erum við fær um að spyrja á ákveðinn hátt um rök og getum rökstutt. Aðeins vegna þess að við getum spurt og rökstutt, eru örlög rannsakandans lögð í hendur tilvistar okkar. Spurningin um neindina setur okkur - spyrjendurna - sjálfa í spurn. Hún er frumspekileg. Mannleg tilvera getur aðeins beint atferli sínu að því sem er, ef hún heldur sér út í neindina. Stigið út yfir það sem er gerist í eðli tilverunnar. Þetta yfirstig er einmitt frumspekin sjálf. I þvf felst: Frumspekin tilheyrir „náttúru mannsins". Hún er hvorki grein innan skólaheimspekinnar né vettvangur tilviljanakenndra hugdetta. Frumspekin er grundvallaratburður í tilverunni. Hún er sjálf tilveran. Vegna þess að sannleikur frumspekinnar býr í þessum botnlausa grunni, er næsti nágranni hennar hin veglausa villa, sem sætir stöðugt færis. Af þessum sökum kemst engin vísindaleg ögun í hálfkvisti við alvöru frumspeldnnar. Heimspekina er aldrei hægt að mæla með mælistiku hugmyndar vísindanna. Ef við höfum raunverulega spurt spurningarinnar um neindina, þá höfum við ekki leitt okkur frumspekina fyrir sjónir utanfrá. Við höfúm ekki heldur „sett okkur inn í hana“. Við getum alls ekld sett okkur inn í hana, vegna þess að við - svo framarlega sem við erum til - stöndum ávallt þegar inni í henni. Physei gar, 0 phile, ensti tisphilosophia te tou andros dianoia (Platon, Faídros 2793.). Svo lengi sem maðurinn er til, gerist á vissan hátt heimspeki. Heimspeki - sem við nefnum svo - er gangsetning frumspekinnar, sem kemur henni til sjálfrar sín og sinna sérstöku verkefna. Heimspekin fer aðeins í gang við einkennilegt stökk eigin tilvistar inn í grundvallarmöguleika tilverunnar í heild. Fyrir þetta stökk skiptir sköpum að skapa fyrst rými fyrir það sem er í heild og síðan að sleppa sér lausum í neindina, þ.e. að losna undan hjáguðunum sem hver og einn á sér og er vanur að laumast
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.