Hugur - 01.06.2011, Side 153

Hugur - 01.06.2011, Side 153
Ritdómar vegar á hún að veita lesandanum yfirlit yfir áhrif efahyggju „á hugsunarhátt og menningu Vesturlanda" og hinsvegar er hún „málsvörn efahyggjumanns" (9). Fyrra hlutverkinu er sinnt fyrst og fremst með sögulegri umfjöllun, þar sem saga efahyggju frá Pyrrhoni til dagsins í dag er rakin í grófum dráttum og mestur gaum- ur gefinn heimspeki nýaldar. Eins og Atli bendir sjálfur á þá bregður þessi frásögn ekki síður ljósi á þekkingarfræði sem slíka og sögu hennar. Verkið er greinilega skrifað með það fyrir augum að hver sem er geti gluggað í það sér til gagns og gamans. Alkunna er hversu snúið það er að gera öllum til geðs og vissulega gæti það hvarfiað að lesand- anum að höfundurinn geri þekkingu hans ekki sérstaklega hátt undir höfði. En þá ber að hafa hugfast hversu mikil fengur það er fyrir lesendur sem eru að byrja að fóta sig áfram á „heimspekilegum braut- um“ að komast í svo skýrt rit um heim- spekilegt efni. Eins gæti það verið álitinn galli hversu hröð og á stundum yfirborðs- kennd umfjöllun höfundar um einstök tímabil heimspekisögunar er. En á móti kemur að bókin er knöpp og þjónar ágæt- lega þeim yfirlýsta tilgangi sínum að vera inngangur að heimspekilegri þekkingar- fræði. Þó verður að spyrja hvort t.a.m. sú mynd sem er dregin upp af heimspeki miðalda sé til þess fallin að dýpka eða glæða skilning lesandans (19-20). I raun fellur frásögn Atla af sögu efa- hyggjunnar mjög vel að þeirri söguskoð- un sem hefur verið ráðandi síðustu aldir meðal heimspekinga um flestallt sem við- kemur heimspeki: Frækornin er að finna í grískri fornöld en eftir daga Ágústínusar einkennist kristin miðaldaheimspeki af stöðnun sem varð hlutskipti evrópskrar heimspeki allt fram til endurreisnarinnar og var í raun ekki rofið fyrr en undir lok sextándu aldar. Blómatími heimspekinn- ar er síðan sautjánda og átjánda öldin, og nær hún svo fullum skrúða í heimspeki Kants. Helstu strauma í heimspeki dags- 151 ins í dag má svo í grófum dráttum rekja til Kants og Locke. Ekki verður gerð sér- stök athugasemd við þessa söguskoðun hér, þó svo að hún sé alls ekki hafin yfir gagnrýni. Söguskoðun af svipuðum meiði gerir vart við sig í stuttri umfjöllun um sögu vísindanna (133). Sú mynd sem þar er dregin upp af þekkingarleit mannsins sem línulegu ferli, þar sem stöðugt bæt- ist við þekkingarforðann og þekkingin verður æ fullkomnari og réttari, virðist fela í sér ákveðna söguskekkju sem heldur rýrir gildi verksins. Þó þarf það alls ekki að vera svo að túlkunarfræðilegir ásteyt- ingarsteinar á borð við þennan hreki þær heimspekilegu röksemdir sem Atli heldur fram og eru kjarni verksins; sem er vitaskuld málsvörn efahyggjunnar. I lokaorðum bókarinnar er varpað ljósi á með hvaða hætti þeirri málsvörn var haldið uppi. Sú aðferð sem Atli beitir er fyrst og fremst fólgin í því að „rökstyðja að tilraunir heimspekinga til að hrekja efahyggju hafi minni en engan árangur borið“ (139). En jafnhliða því er reynt „að sýna fram á að efahyggja sé engan veg- inn sú ógn sem margir hafa haldið heldur holl speki og heiðarleg" (139). En hvernig tókst til? Um hefl og af hefl Túlkun Atla leggur áherslu á að efahyggja sé samofin þróun þekkingarfræðinnar í sögu heimspekinnar, og að það hafi verið glíman „við róttæka efahyggu sem mótaði heimspeki nýaldar“ og markaði þær braut- ir sem þekkingarfræði vestrænnar heim- speki hefur unnið eftir fram á okkar dag (9). Einnig má segja að þessi sögulega frásögn sé kjarninn í þeirri „málsvörn" sem ritinu er ætlað að vera. Fátt er jú meira sannfærandi en góð saga. Og boð- skapur þessarar sögu er m.a. sá að „heið- arlegur maður“ geti ekki verið nokkuð annað en efahyggjumaður (10). Það er því eitthvað mikilvægt í húfi, áskorun efa- hyggjunnar er ekki einungis akademísk eða fræðileg, hún snýst um „heiðarlegan“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.