Helgafell - 01.09.1944, Page 164
322
HELGAFELL
Coubet: Miðdegisdraumur
stæðu fegurðaráhrif þeirra öðru fram-
ar fólgin í hvarflan ljóssins á lygnum
vatnsfleti, mjúklegri stuðlun djúprar
fjarvíddar og yndislegri samþýðingu
blárra og hvítra lita.
Listamaðurinn valdi sér oftlega
klassísk myndarefni, svo sem Forum
Romanum, en meðferð hans á þeim
er rómantísk. I þessari samtímamynd
frá Róm eru áhrifamestu sérkennin
einnig samleikur skínandi birtu og
skugga. Myndin gefur ótvírætt til
kynna, — í fyllsta samræmi við anda
rómantískunnar —, horfna vegsemd
mikilfenglegrar menningar og sýnir
minjar hennar kafnar vanburðugum og
ófögrum nýgróðri rislægri aldar.
Corot er kunnastur af landslags-
myndum sínum, t. d. Dóml^irkjunni
í Nantes, er hann málaði undir ævi-
lokin. Hér freistar hann að tjá og
túlka mildi og friðsæld náttúrunnar
í blæhvörfum silfurblárra lita, Ijósa-
skipti kvölds og morgna, lauf, sem
bærist næstum ósýnilega. Tilfinninga-
söm náttúrutúlkun af þessu tagi varð
honum æ tamari í landslagsmyndum,
en athuganir þær á ljós- og litbrigð-
um, er hann myndfesti þannig, urðu
frönskum listamönnum mikils virði
síðar á 19. öldinni.
Á þessu sama skeiði rís í Bandaríkj-
unum hin fyrsta alda landslagsmynd-
listar, sem að kveður. Eins og frásagn-
armyndlistin eftir ófriðinn, sem lauk
1812, hófst hún úr djúpum vaxandi
samvitundar og metnaðar ungrar þjóð-
ar, sem var að uppgötva, að henni
væri gefið nýtt og mikið meginland.
Merkasti bandaríski landslagsmálar-
inn á öndverðri 19. öld var tvímæla-
laust Thomas Cole. Hann stundaði
listnám í fyrstu við Hudsonfljótsskól-
ann svonefnda (er ætlaður var lands-
lagsmálurum) en síðar við ýmsa skóla
í Evrópu. Ekki varð list hans þó veru-