Helgafell - 01.09.1944, Blaðsíða 222
380
HELGAFELL
vera það jafn sjálfsagt að iðka leikfimi og þvo
sér.
í formála bókarinnar segir : að í henni sé lýst
nokkrum æfingum, sem eigi að vera vörn gegn
hryggskekkju og öðrum skyldum vaxtarlýt-
um. í henni er lýst æfingakerfum fyrir fólk á
öllum aldri, úr því barnið fer að halda höfði.
Hverri æfingu er lýst ýtarlega í lesmáli, en
auk þess fylgja skýringamyndir þeim öllum.
Verða æfingarnar með þessu móti svo auðlærð-
ar, að hver skussi hlýtur að læra þær fyrir-
hafnarlaust, ef hann vill.
Eftir stuttan inngang: lýsingu á hrygg og
hugvekju um nauðsyn þess að taka hrygg-
skekkju til meðferðar í byrjun, lýsir höfundur
því í stuttu, en skýru máli, hvernig leitað er
að skekkju í baki.
Fyrsti æfingakaflinn er fyrir börn til fimm
ára aldurs, en sá næsti fjallar um æfingar
fyrir fimm til tíu ára börn. Þá tekur skólaaldur-
inn við. Eru þar kenndar fimmtán æfingar, sem
ætlazt er til, að nemendur geri í sæti sínu við
skólaborðið.
Eins og fyrr er getið, er tími til líkamsæfinga
mjög skorinn við neglur í íslenzkum ekólum,
og eru hér ráð til þess að bæta nokkuð úr því.
Ef teknar eru nokkrar mínútur af hverri kennslu-
stund til slíkra iðkana, þá tapast þær að vísu
fræðunum, en skyldu þær ekki vinnast upp
í aukinni eftirtekt og meiri áhuga hinn hluta
tímans?
Síðasti kaflinn er um fótaæfingar, næsta
nauðsynlegur þeim, sem hafa miklar kyrrset-
ur eða ilsig. A undan þessum þætti fara tveir
kaflar um daglega leikfimi. Eru æfingar þær
að vísu fyrst og fremst ætlaðar baki og bol,
en ná þó til alls líkamans. Þessar æfingar gefa
bókinni almennara gildi og meira hlutverk, en
höf. nefnir í formálanum. Hér er hverjum
manni gefinn kostur á því að temja sér lík-
amsrækt, og þó að það sé of mikil bjartsýni
að búast við því, að allir fari að iðka æfing-
ar Jóns, þá varðar það miklu, að menn eigi
þess kost.
Jón er of hógvær maður til þess að boða
kenningar sínar og áhugamál með þeim áróðri,
sem þarf til þess að gera þær almenningseign
á skömmum tíma. Er það að sumu leyti illa
farið, því að ýmis ,,trúarbrögð“ eru þjóðunum
nú boðuð, sem eru ómerkilegri en þau að
leggja rækt við líkama sinn.
Er þess að vænta, að hugmyndir bókarinnar
falli í góðan jarðveg hjá yfirmönnum skólanna
í landinu. Færi vel á því, að æfingakerfin yrðu
fastur liður í kennslunni. Þá mundi hin upp-
vaxandi kynslóð flytja þær með sér út í lífið,
inn á heimilin, í verksmiðjur og á vinnustöðv-
ar. Þá hefði bókin borið ríkulegan ávöxt, og
höf. hlotið þau laun, sem hann helzt mundi
kjósa.
Bjarni Jónsson, læknir.
NYJUSTU BARNABÆKURNAR
FRUMSAMDAR :
Frímann Jánasson: HVE GLÖÐ ER VOR ÆSKA. ísaf. Rvík 1944. 172 bls. kr. 20,—
Kári Trygguason: FUGLINN FLJÚGANDI. Kvæði handa börnum. W. Árnason gerði
teikningarnar. Leiftur, Rvík 1943. 104 bls. kr. 16,—
RagnheiSur Jónsdóttir: HLINI KÓNGSSON. Leikrit handa börnum. Skuggsjá. Rvík 1943.
39 bls. kr. 8,—
BAKKABRÆÐUR. Ævintýri úr þjóðsögum Jóns Árnasonar. Með
myndum eftir Fanneyju Jónsdóttur. Útg. Guðj. Ó. Guðjónsson.
Rvík 1944. kr. 6.—
, ,ÉG SKAL SEGJA ÞER. . .“ Bréf til pabba og mömmu frá börn-
um í sveit. Valið hefur Vilhj. S. Vilhjálmsson. Sleipnisútgáfan.
Rvík 1943. 30 bls. kr. 10,—
ÓLAFUR LILJURÓS. fslenzkt þjóðkvæði. Með myndum eftir Fann-
eyju Jónsdóttur. Útg. Guðj. Ó. Guðjónsson. Rvík 1943. kr. 14,—
SAGAN AF HANS KARLSSYNI. Skurðmyndir eftir Jóhann Briem.
Útg. Guðj. Ó. Guðjónsson. Rvík 1942. 24 bls. kr. 6,40.