Helgafell - 01.09.1944, Qupperneq 201
BÓKMENNTIR
359
vel, svo að sum þessi orð eru líkleg til lang-
lífis í tungunni, svo sem set og ro/. Onnur þykja
mér hæpnari, til dæmis höggun og Ijósgrýti.
Hitt tel ég óþarfa og sízt til bóta að taka upp
nýyrðið brúngrýti, þar sem tungan á til svo fag-
urt orð og munntamt sem móberg.
Margt mynda er í bókinni og sumar ágæt-
ar. Má þar fyrst telja uppdrætti höfundar og
skýringarmyndir, sem eru gerðar af miklum hag-
leik og eru bæði til gagns og prýði í bókinni.
Flestar ljósmyndanna eru einnig góðar, og ber
að þakka þetta, því að mörgum sést yfir mynda-
valið, er þeir rita slíkar bækur og gefa ut.
Ritskrár og heimilda eru ágætar, en registur
vantar, nema um nokkur jarðfræðihugtök. Prent-
un og handbragð allt er betra en menn eiga að
venjast nú, og er það útgefendum til sóma.
Með þessari bók hefur Guðmundur Kjartans-
son rutt sér til rúms innarlega á bekk íslenzkra
náttúrufræðinga og sýnt það glögglega, að mik-
ils má af honum vænta, ef allt fer með felldu.
Pálmi Hannesson.
Bókarauki við
Borgarfjarðarsögu
Kristleijur Þorsteinsson: ÚR BYGGÐ-
UM BORGARFJARÐAR. — ísaf. 1944.
336 bls. Verð: kr. 45—; 75—.
I bók þessari, sem er 336 bls. að stærð í frem-
ur stóru broti, er safnað í eina heild greinum
og ritgerðum Kristleifs fæðimanns á Stóra-
Kroppi um ýmis konar þjóðleg efni, er birzt
hafa hér og hvar í tímaritum, lesbókum blaða
og víðar. Hefur sonur höfundarins, Þórður
kennari Kristleifsson, safnað ritsmíðunum
saman og búið bókina til prentunar.
Kristleifur Þorsteinsson er löngu þjóðkunn-
ur af ritum sínum, sem eru öll að meira eða
minna leyti þjóðfræðalegs efnis. Liggur orðið
mikið eftir hann í þeirri grein, því að í þessa
bók eru hvorki teknar hinar mörgu ritgerðir
hans í Sögu Borgarfjarðar né Ameríkubréf
hans, sem birzt hafa í blaðinu Lögbergi nú
á þriðja tug ára og hafa að geyma margvís-
legan fróðleik úr héraði hans á því tímabili.
Mega Borgfirðingar sér í lagi vera honum þakk-
látir fyrir hin miklu drög hans til sögu hér-
aðs þeirra, en ýmsir aðrir koma þar einnig við
sögu. Þannig eru t. d. sagnaþættir af Vatns-
leysuströnd einkar fróðlegir og vel ritaðir.
Sagnaritun Kristleifs virðist að litlu leyti
byggð á heimildakönnun, heldur reist á minni
höfundar, sem hlýtur að vera óvenjutraust. En
þrátt fyrir það má alltaf búast við einhverjum
villum og missögnum, ekki sízt um ættir
manna, ártöl og því um líkt, þegar svo er að
farið. Hefur greinagóður Borgfirðirgur, Guð-
mundur Illugason, bent á nokkur dæmi af því
tagi í þessari bók Kristleifs í grein um hana,
er birtist í blaðinu ,,Tímanum“ fyrir nokkru.
Þetta er vitanlega galli, en þess ber þó að
geta, að það er ekkert aðalatriði. Hitt skiptir
mestu máli, að myndir höfundar af mönnum,
atburðum og aldarhætti séu sannar og réttar,
og það virðast þær vera. Misfellur f einstök-
um smáatriðum má alltaf leiðrétta og mundi
verða gert í næstu útgáfu.
Það er mjög vel ráðið að gefa þetta ritgerða-
safn Kristleifs út í einu lagi. Þykir mér það
hin eigulegasta bók, sem aftur og aftur má
grípa til sér til skemmtunar og fróðleiks.
Guðní Jónsson.
NYJAR BÆKUR UM FORN FRÆÐI
Ur málsögu Indógermana
Alexander Jóhannesson: UM FRUM-
TUNGU INDÓGERMANA OG FRUM-
HEIMKYNNI. Fylgirit Árbókar Háskóla
Islands 1940—41.
Samanburðarmálfræði nefnist sú grein mál-
vísinda, er fjallar um afstöðu tungumála inn-
byrðis, samkenni þeirra og sérkenni, eins og
þau birtast í formi orðanna og merkingum,
breytingar þær, er orðið hafa á þeim gegnum
aldirnar, eðli þeirra breytiílga og þróun og þau
lögmál, er þær lúta. Geysivíðtækar og marghátt-
aðar rannsóknir af þessu tagi hafa verið gerð-
ar á málum vestrænna þjóða, og hafa þær leitt
í ljós, að tungumál flestra Evrópuþjóða og auk
þess allmargra þjóða í Suðvestur-Asíu eru ekki
aðeins á marga lund áþekk að allri byggingu,