Helgafell - 01.09.1944, Page 207
BÓKMENNTIR
365
TVÖ FORNRIT PRENTUÐ I FYRSTA SINN
Á ÍSLANDI
Heimskringla með myndum
norskra listamanna
Snorri Sturluson: HEIMSKRINGLA. —
Steingrímur Pálsson bjó undir prentun.
Helgafell. Rvík 1944. 800 bls. Verð: kr.
145—; 270—.
Þó að einkennilegt sá, hefur Heimskringla
Snorra Sturlusonar, hið langfrægasta fornrit vort
eftir nafngreindan höfund, aldrei verið prentuð
í heild hér á landi fyrr en nú. Tvívegis hefur
þó verið byrjað á prentun hennar, en í hvorugt
skiptið entust útgefendurnir til þess að ljúka
verkinu. Árið 1804 var byrjað að prenta hana
í Leirárgörðum, en sú útgáfa náði eigi lengra
en til loka Olafs sögu Tryggvasonar. Á árunum
1892—93 komu út tvö bindi af Heimskringlu.
en þau náðu ekki nema til loka Olafs sögu
helga, og var þeirri útgáfu þar með hætt. Nú
hefur Hið íslenzka fornritafélag með höndum
vandaða útgáfu af Heimskringlu. Kom I. bindi
af þremur út árið 1941, en II. bindi er nú í
prentun. Þegar þeirri útgáfu lýkur, má segja,
að vér íslendingar höfum rekið röggsamlega
af oss slyðruorðið, er vér höfum á fáum árum
eignazt tvær fallegar og vandaðar útgáfur cí
þessu ágæta fornriti voru.
Hin nýja Heimskringluútgáfa Helgafells virð-
ist, að því er ég fæ bezt séð, í alla staði hin
prýðilegasta. Letrið er bæði skýrt og áferðarfall-
egt, svo að mér þykir af bera, og frágangur
smekklegur. Eins og kunnugt er, er bókin prýdd
fjölda mynda, — þær munu vera um 300 tals-
ins, — eftir ýmsa norska listamenn, teiknaðar í
eina af hinum mörgu og vönduðu Heimskringlu-
útgáfum Norðmanna.
Vera má, að myndirnar falli misjafnlega við
smekk manna, en hvað sem um það er, eru
þær í heild sinni mikil bókarprýði og munu
stuðla mjög að því, að unglinga, sem fá bókina
í hendur, fýsi enn meir en ella að lesa þetta
ágætisrit. Auk hinna mörgu teiknimynda er
framan við bókina mynd af titilsíðunni í fyrstu
útgáfu Heimskringlu, er kom út í Stokkhólmi
1697, og ennfremur af upphafi Ynglinga sögu
í sömu útgáfu. Þá fylgja og með myndir af
hinu eina blaði, sem til er úr Kringlu, elzta
og bezta skinnhandriti Heimskringlu. Er það
handrit talið ritað um 1260, en örlög þess urðu
þau, að það brann í Kaupmannahöfn 1728, en
til allrar hamingju eru til góðar uppskriftir af
því auk annarra Heimskringluhandrita á skinni.
Utgáfa þessi er byggð á útgáfu Finns Jóns-
sonar, Khöfn 1911, sem var endurprentuð ó-
breytt 1923. Er það viðurkennd mjög góð texta-
útgáfa, enda er hún byggð á hinni stóru, vís-
indalegu Heimskringluútgáfu Finns Jónssonar
frá því um aldamótin. Ekki getur útgefandi þess,
að hann hafi notað neitt þá útgáfu til hlið-
sjónar.
Islendingar mega taka þessari útgáfu með
þökkum og lesa nú Heimskringlu og kynna sér
hana rækilega. Nú er ekki hægt að afsaka sig
lengur með því, að hún sé ófáanleg.
Guðm' Jónsson.
Flateyjarbók
FLATEYJARBÓK I. bindi. Flateyjarút-
gáfan. Prentverk Akraness h/f. 1944
bls. 610. Verð: kr. 75—; 100—.
Eins og kunnugt er, er Flateyjarbók mest allra
íslenzkra handrita frá fyrri öldum, mest til henn-
ar vandað að frágangi og óvenjulega vel varð-
veitt, miðað við íslenzk handrit yfirleitt. Efni
hennar er eigi aðeins geysimikið að vöxtum,
heldur og næsta fjölbreytt, þótt konunga sögur
skipi þar öndvegið. En inn í þær er fléttað
fjölda þátta, þar á meðal mörgum hinna svo-
nefndu Islendinga þátta, og eru sumir þeirra
hvergi til annars staðar, og sama máli gegnir
um margt fleira. En meginefnið er þó til ann-
ars staðar og í aðgengilegri mynd, því að ritarar
Flateyjarbókar hafa safnað öllu, sem þeir náðu
til af konunga sögum, einkum sögum þeirra
Olafs Tryggvasonar og Ólafs helga, og steypt
þeim saman til þess að ná öllu með, sem um
þá fannst ritað. Er þannig í Ólafa sögum Flat-
eyjarbókar hrært saman mörgum ritum, og get-
ur verið næsta torvelt að greina til víss, hvaðan
hvað er runnið. Inn í Ólafs sögu helga er til
dæmis felld öll Fóstbræðra saga, vegna þess, að
fóstbræðurnir gerðust hirðmenn Ólafs konungs
og Þormóður féll með honum, en Hallfreðar