Helgafell


Helgafell - 01.09.1944, Page 216

Helgafell - 01.09.1944, Page 216
374 HELGAFELL traust sitt þar, sem þessir tveir menn eru, að öllum öðrum ólöstuðum. Margir aðrir hafa þó miðlað því drjúgum, svo sem Sigfús Blöndal, Guðrún Jónsdóttir, Jón Leifs, Kristján Alberts- son, Sveinn Bergsveinsson, Matthías Jónasson. Marga fleiri mætti nefna, en hér verður stað- ar numið. Ekki verður vikið að einstökum greinum, eða efni þeirra, enda koma þær víða niður, en hitt skal fullyrt, að efnið sé ekki að- eins fjölbreytt, heldur séu ýmsar greinarnar gagnmerkar og kvæðin eigi síður. Frón kemur út fjórum sinnum á ári. Kostar árgangurinn sex krónur danskar, og þætti það ódýrt hér heima. Þess verður að geta, út- gefendum til verðugs lofs, að tímaritið er svo vandað að orðfæri og öllum búnaði, að langt ber af flestu því, sem tíðkast heima hér. Ég þykist mega fullyrða, að ,,Frón“ þyki aufúsugestur á heimilum flestra Islendinga, er það kemur til, hvort sem þeir búa í stórum salarkynnum eða þakherbergjum á sjöttu hæð, og efast ég um, að önnur íslenzk rit séu betur þegin á þessum tímum, né komi í betri þarfir. Aftan á einu heftinu er hin nýja söngbók Stúdentafélagsins í Höfn auglýst. Þar segir svo að síðustu: ,,Þeir sem vilja eignast gott safn íslenzkra kvæða, eiga hér kost á þeim fyrir mjög lágt verð, hvort heldur þeir ætla sér að syngja þau í fjölmenni, eða rifja þau upp og raula í einveru**. Sennilega er nú daprara í kóngsins Kaup- mannahöfn en oft áður, og einveran meiri meðal Islendinga en fyrr. Pálmi Hannesson. FJÓRAR BÆKUR UM FRELSISBARÁTTU NORÐMANNA Noregur undir oki nazismans Jac. S. Worm-Miiller: NOREGUR UND- IR OKI NAZISMANS. Ragnar Jóhann- esson ísl. — Blaðamannafél. íslands. — Rvík 1944. 166 bls. Verð: kr. 25—. Bók þessi er að meginefni nokkrir fyrir- lestrar, er höfundurinn, Worm-Múller, fyrrum prófessor í sögu við háskólann í Osló, flutti í Reykjavík sumarið 1942, en nokkru nýju efni bætt við. Höfundurinn var sjálfur í Noregi fyrstu mánuði hernámsins, eða fram á haust 1940, þegar honum var ekki lengur vært í Noregi. Þótt ekki væri fyrir annað, er bók hans því mikilvæg heimild um hina afdrifa- ríku mánuði í sögu hernámsins, er þau stjórn- arvöld Noregs, sem eftir urðu í landinu, reyndu að ná samkomulagi við Þjóðverja og finna ein- hvern modus tíivendi, er gæti gert sambúðina við Þjóðverja þolanlega. Höfundurinn fylgdist sjálfur með þessum samningaumleitunum, og frásögn hans um þessi efni er einkar fróðleg, eins og raunar öll bókin, sem rekur rás við- burðanna fram á haustmánuði ársins 1943. Þótt höfundurinn sé sýnilega andvígur ýmsu því, sem ábyrgir Norðmenn gerðu til samkomu- lags við Þjóðverja, þá lýsir öll frásögn hans glöggum sögulegum skilningi á hinum erfiðu aðstæðum lítillar þjóðar, sem varð að verja líf sitt og landsréttindi í sama mund og tvö stór- veldi Evrópu fóru hinar ægilegustu hrakfarir, og viðbúið var, að Þýzkaland yrði allsráðandi í álfunni. Þá var og annað, sem því réð, að Norðmenn lögðu sig í framkróka til að semja við Þjóðverja: Þeir trúðu því ekki, fyrr en þeir tóku á, að ekki var að treysta á orð Þjóðverja eða eiða, að samningar eru nazistum ekkert annað en ,,nordische List“, norræn klókindi, sem hin goðborna þjóð svíkur, þegar henni býð- ur svo við að horfa. Norðmenn urðu að læra af dýrkeyptri reynslu, að þjóð, sem er minni- máttar, getur ekki átt samvinnu við Þýzkaland, þar sem það á bæði máttinn og dýrðina. Þess vegna fór svo, eins og Worm-Muller lýsir svo á- gætlega, að öll samvinna Þjóðverja og Norð- manna fór út um þúfur, þegar undan er skilin leppmennska örfárra vesælla kvislinga, en öll norska þjóðin snerist til fulls fjandskapar við Þjóðverja. Allar stéttir Noregs, öll félagssamtök og allar menningarstofnanir risu upp gegn kúgun hinna germönsku ,,frænda“, og Þjóðverj- ar unnu hvert óhappaverkið og afglapa öðru verra eftir því sem lengra leið. Sögu þessa þjóð- arviðnáms og þjóðareiningar hefur Worm-Múll- er tekizt að skrifa á óvenju hrífandi og heill- andi hátt, og ég hygg, að bréf norskra barna-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244
Page 245
Page 246
Page 247
Page 248
Page 249
Page 250
Page 251
Page 252

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.