Helgafell - 01.09.1944, Side 226
384
HELGAFELL
tíma, er hann verður sjálfur konungur skógarins.
Bamba má skipa í röð beztu dýrasagna handa
börnum, enda hefur hann náð heimsfrægð. Mun
hann vafalaust hljóta mikla hylli barna hér á
landi. — Gosi er upphaflega samin af ítalska
rithöfundinum Carlo Lorenzini, sem ritar undir
dulnefninu Charles Collodi. Náði Gosi brátt
afarmiklum vinsældum á Italíu og var þýddur
á mörg tungumál. Hann kom út í íslenzkri þýð-
ingu Hallgríms Jónssonar árið 1922. Síðar hefur
Walt Disney endursamið Gosa, og í þeirri mynd
birtist hann nú á íslenzku. Gosi er saga tré-
brúðu, sem leikfangasmiður nokkur gerði og
þótti svo mikið til koma, að hann óskaði sér
þess, að hún væri lífi gædd. Hitti hann aldrei
þessu vant á óskastundina. En þótt ..óskastjarn-
an“ blési lífsanda í Gosa, skorti hann enn hold,
blóð og sál. Þessa eiginleika varð hann að á-
vinna sér með breytni sinni. Gosi ratar í mörg
ævintýri og leiðist oft í freistni, því að hann er
grannvitur og auðtrúa. En smám saman vitkast
hann af reynslunni og verður loks reglulegur
drengur. — Daniel djarfi heitir bráðskemmtileg
drengjabók eftir Hans Kirk. Lýsir hún ævintýr-
um, sem tveir piltar, kennari þeirra og gam-
all sjómaður komast í, er þeir fóru í róður að
gamni sínu frá Jótlandi. Hrepptu þeir ofviðri,
en komust í skip, sem var á leið til Indlands.
Rata þeir í þeirri för í margan háska* en allt
fer vel að lokum. Þýðingin virðist vera prýðilega
gerð, og frágangur allur er góður. Pési og Maja
heitir barnasaga eftir norsku skáldkonuna Bar-
böru Ring. Páll Sveinsson kennari hefur ís-
lenzkað bókina og er sæmilegt málfar á þýðingu
hans. Þetta er góð og skemmtileg barnabók. —
Tvær bækur hafa komið út í þýðingu ísaks
Jónssonar kennara. Onnur þeirra, Svarti Pétur
og Sara eftir Hugo Forsberg, er handa smábörn-
um, en hin, Duglegur drengur og fleiri sögur,
eftir Bengt Nylund, er ætluð nokkru stálpaðri
börnum. Báðar þessar bækur eru frambærilegar
og geðþekkar að efni, og þýðingin á þeim er
lipur. — Helgi Valtýsson hefur þýtt Grétu, sögu
um unga stúlku, eftir Berthu Holst. Bókin er
góð frá hendi höfundar, en málfar og stíll Helga
eru langt frá því að vera viðkunnanleg, eins og
sjá má af þessu dæmi, sem tekið er af fyrstu
síðu sögunnar: ,,Þessi hávirðulega ungfrú, borg-
arstjóradóttir, var ekki alveg laus við það að
líta dálítið stórt á sína eigin persónu,
og hún var alls ekki ánægð með þá stjórnar-
athöfn föður síns, þegar hann veitti samþykki
sitt til þess í bæjarráði, að ,,Ungfrú Borcher-
sens hærri ungmeyjaskóli“ skyldi lagður niður,
og öll borgaræskan ganga í einn og sama skóla,
eins og vera ber í lýðfrjálsu landi“. — Guðjón
Guðjónsson skólastjóri hefur íslenzkað bók eft-
ir Clarie Blank, og nefnist hún Beverly Gray.
Er það einnig saga um unga stúlku. Bókin er
fremur laglega samin, en nokkuð langdregin.
Málið á þýðingunni er gott. — Lestina rekur
svo Meyjas\emman eftir Esther Nielsen, og er
hún, eins og nafnið bendir til, einnig ætluð
ungum stúlkum til lestrar. Þetta er ekki ólag-
legur reyfari, en engin ástæða er til að ætla,
að hann sé ungum stúlkum hóti hollari lestur
en meðal skemmtisögur eru upp og ofan.
Simon Jóh. Ágústsson.