Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Blaðsíða 96
Tímarit Mdls og menningar
háyfirdómara Jónssonar, og fá hann til þess að gangast fyrir að safna
áskorunum um aukaþing hjá þingmönnum meiri hlutans, svo skyldi minni
hlutinn koma á eptir. Kristján Jónsson svaraði Jóni Ólafssyni, að hann
mundi gera það sem í hans valdi stæði til þess að koma fram aukaþings-
kröfunni.
Isafold birti 5. mars 1910 svolátandi yfirlýsingu frá dönsku bankamönn-
unum sem hingað komu til þess að rannsaka hag Landsbankans eptir
undirlagi stjórnar Landmandsbankans í Kaupmannahöfn:
Landmandsbanken har efter den af os givne Beretning om Islands Landsbank paa
given Foranledning bemyndiget os til að erklære, at den af os foretagne Revision
ikke viser et bedre Resultat end det af Undirsögelseskommissionen konstaterede.
Fredericia 18.Febr.1910 Köbenhavn 17.Febr.1910
Chr.Jörgensen C.Christensen
Landmandsbankinn hefir, að fenginni skýrslu vorri um Landsbanka ís-
lands og að þar til gefnu tilefni, veitt okkur umboð til að lýsa því yfir,
að endurskoðun sú, er við höfum gert, sýnir ekki betri niðurstöðu en þá,
er rannsóknarnefndin hefir komizt að raun um.
ísafold gerði mikið veður úr framangreindri yfirlýsingu, en bæði Þjóð-
ólfur 11. mars 1910 og Þjóðviljinn, sem kom út skömmu síðar en yfir-
lýsing þessi kom í Isafold, benda með rjettu á, að lítt sje takandi mark á
yfirlýsingu þessari og að það nái engri átt, að segja um vottorð þetta, að
það „taki af skarið“, eins og Isafold kemst að orði.
Brjef frá stjórn Landmandsbankans til gömlu landsbankastjórnarinnar,
sem er birt í Lögrjettu V., 19. tbl. 13. mars 1910 sýnir best, að ekki er
takandi mikið mark á ofangreindri yfirlýsingu bankamannanna dönsku og
að ummæli Isafoldar um yfirlýsinguna eru næsta óábyggileg og staðlítil.
Ennfremur ber nefnt brjef með sjer, að ráðherra hefir beðið um yfirlýs-
inguna, þótt Isafold synji fyrir það og að hvorki stjórn Landmandsbank-
ans nje erindrekar hans, dönsku bankamennirnir, hafa heimtað að yfirlýs-
ingin væri gerð heyrin kunnug, heldur hafi ráðherra tekið það upp hjá
sjálfum sjer.
Mánudaginn þ. 25. apríl var bankamálið dæmt í yfirdómi; þar var
fógetaúrskurðurinn frá 4. janúar 1910 staðfestur, en með nokkurri annarri
röksemdaleiðslu en fógeti hafði byggt úrskurð sinn á og Birni Kristjáns-
syni og Birni Sigurðssyni dæmt að greiða Kristjáni Jónssyni háyfirdómara
og Jóni Magnússyni bæjarfógeta málskostnað fyrir yfirdómi, 20 kr. hvor-
334