Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Blaðsíða 105
Ráðherradagar Björns Jónssonar
eg við kaupmann Th. Thorsteinsson. Hann kvaðst hafa lesið hið enska
Prospekt Einars Benediktssonar [„The British North Western Syndicate
Limited Reports"] og sagði mjer frá ýmsum öfgum, sem í því stæði, svo
sem að Eggert málaflutningsmaður hefði gefið E. B. vottorð, að hann væri
ríkur maður, eptir því sem talið væri á Islandi, að E. B. teldi í Prospektinu
eignir sínar 200.000 pd virði, að Aug. Flygenring hefði gefið honum annað
vottorð o. s. frv. Um kvöldið sama dag talaði eg við Hannes Hafstein;
hann átti þá von á að fá Prospektið að láni og fá að lána það til kl. 10
mánudagsmorgun þann 12. sept.; átti svo Jón Olafsson að fá það lánað
yfir sunnudaginn og fram til mánudags til þess að geta tekið afskript af
því, er síðan yrði gefin út á ensku og íslenzku. Hafði hann tvo tipritara1
í vinnu allan sunnudaginn (Björn Pálsson og kærustu hans Mörthu Ind-
riðadóttur) og mánudaginn þann 12. sept. Ijet hann notarius publicus stað-
festa eptirritið; stendur nú til að þetta fjárgróðabrall verði birt í Reykja-
víkinni um eða eptir miðja vikuna.
Miðvikudaginn þ. 14. sept. stöðvaði landritari Klemens Jónsson L. H.
Bjarnason í Vonarstræti og sagði honum að ráðherra Björn Jónsson sæti
nú sem fastast og honum væri fjærri skapi að segja af sjer. Gat þá maður
til að ráðherra hefði fengið einhvern ávæning af orðrómi þeim, sem gekk
um bæinn nýskeð og greint er frá hjer að framan og landritari var borinn
fyrir, og hefði ráðherra síðan gert landritara út af örkinni til þess að láta
hann jeta ofan í sig þetta þvaður. Er ekki ólíklegt að þessi tilgáta sje rjett,
því töluverður asi var á landritara og hann virtist eiga að fara í fleiri staði.
21. sept. síðdegis talaði eg við Hannes Hafstein og barst það þá í tal,
að Björn Jónsson ráðherra ætlaði utan þann 23. með Sterling. Vorum við
á því, að rjettara væri að geta eitthvað um þessa utanför Björns og erindi
hans. Sagði hann mjer þá, að hann hefði í gærkveld (þriðjudaginn þ. 20.)
farið heim til Guðmundar Björnssonar landlæknis og talað við hann um
efni í ritstjórnargrein „um utanferð og erindi“ í Lögrjettu þ. 21., er Guðm.
skrifaði sjálfur eða Ijeti Þorstein skrifa. Kvaðst hann hafa rifjað upp fyrir
honum merita Björns Kristjánssonar sem og bent honum á, að það væri
móti stjórnarskránni, ef Björn ráðh. færi nú að fá konung til þess að út-
nefna Björn Kr. fyrir eptirmann sinn, því að eptir stjórnarskránni væri
landritari sjálfkjörinn til þess að gegna störfum ráðherra, þar til nýjar
kosningar færi fram. Skyldi svo senda grein þessa til danskra blaða til
1 spurningamerki við tip.
343