Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Blaðsíða 106
Tímarit Máls og menningar
umsagnar þeirra; Hannes hafði og við orð að skrifa Neergaard, en hins
vegar gæti Bogi Melsted leitt athygli Klaus Berntsen að fyrirætlunum
Björns ráðherra; jeg taldi það ekki ráðlegt að láta danska stjórnmálamenn
eða dönsk blöð skipta sjer svo teljandi væri nokkuð af íslenzkum sjer-
málum.
23. sept. átti eg tal við Jón Olafsson fyrv. ritstjóra; skýrði hann mjer
frá ýmsu, er lýtur að stofnun brezka fjelagsins, svo sem að sannfrjett væri
- og bar hann nýja skýrslu fyrir því, sem eg hefi ekki sjeð - að höfuðstóll
fjelagsins væri aðeins £ 16000, og hlutirnir væri £ 1 og jafnvel 1 sh. hlutir;
fjelagið þá sem fleiri slík gróðabrallsfjelög stofnað til að hafa fje út úr
fátæklingum. Líka kvaðst hann frá brezku Informationsbureau hafa fengið
ummæli um Mr. Rawson — þó mun Jón ekki hafa fengið þau, þó hann
segi svo, heldur Islandsbanki, sem einnig átti eintak það, er Jón Olafsson
þýddi í Rvík — þess efnis, að hann væri af góðu fólki og virtist heiðvirður
maður, en hefði aldrei getað staðið á eigin fótum og nú væri bú hans
tekið til skiptameðferðar, Likvidation. Svo mörg voru hans orð. Þá sá eg
og hjá Jóni Olafssyni eptirrit úr norsku lögbirtingarblaði, að málaflutn-
ingsmaður Samuel Johnson, að mig minnir, auglýsir þvingunaruppboð á
83 hlutum á 250 kr. í hlutafjelaginu Gigant, sem mun hafa tekizt fyrir
hendur undir forstöðu E. Ben. og Samuel Johnsons(?) að hagnýta sjer afl
Dettifoss og ef til vill fleiri fossa á Islandi og búa til með því hina svo
nefndu himinmykju - skyldu hlutir þessir seljast til lúkningar láni, að
upphæð c. 10000 kr., er Einar Ben. mun hafa slegið Samuel Johnson fyrir.
Ráðherra fer utan. Getgátur um erincLi hans
24. sept. var Oddi Hermannssyni sent brjef (NB brjef) yfir Leith. Innan
í var brjef frá H. Havstein til Neergaards fjármálaráðgjafa. I brjefi þessu
skýrði H. H. Neergaard frá fyrirætlunum Bjarnar ráðherra, að fá konung
til þess að veita Birni sjálfum lausn og gera Björn bankastjóra Kristjáns-
son að ráðherra í hans stað áður en þing kemur saman. Mun H. H. í brjef-
inu hafa leitt rök að því, að þegar svo stæði á, að ráðh. færi frá sakir
veikinda, ætti eptir anda stjórnarskrárinnar landritari að gegna ráðherra-
störfum upp á eigin ábyrgð, þar til þing kæmi saman og benti á ráðherra.
Einnig tjáði Hannes Havstein mjer, að bankastjóri Schou væri persónu-
lega kunnugur forsætisráðherranum og mundi hann í siglingunni ekki
spara að eitra fyrir Birni Kristjánssyni. Þann 29. sept. sagði H. Hafst. mjer,
344