Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Blaðsíða 117
Ráðherradagar Björns Jónssona
þeim saman um, að Jón Jensson skyldi fara til Sigurðar alþm. Stefáns-
sonar og enda látið þess getið, að Jón Jensson ætti að flytja honum kveðju
frá ráðherra. Jón Jensson hirti Sigurð Stefánsson og Þórhall biskup Bjarn-
arson staddan hjá honum í sömu erindagjörðum sem Jón Jensson var
þangað kominn, þ. e. að reyna að fá hann til þess að hallast að frumvarpi
millilandanefndarinnar með breytingum þeim er fráfarandi ráðherra taldi
fáanlegar. Síra Sigurður sló úr og í, en mótmælti þó í engu röksemda-
leiðslu Jóns Jenssonar, en ljet þó á sjer skilja, að nú væri of seint fyrir
flokkinn að snúa við blaðinu, og taldi einnig dálítið efasamt, hvort trygg-
ing væri næg fyrir hendi fyrir því, að breytingarnar fengist. (Sjá hjer til
samanburðar ræðu hans í efri deild gegn frumvarpi minni hlutans).
Vonandi lœtur konungur ekki binda hendur sínar við ncesta ráðherraval
Alþingi var sett þann 15. febrúar 1911. Um alþingissetninguna og
stjórnmálahorfurnar greinar í minni hluta blöðunum og tvær greinar eptir
Verax birtar í Berlingi líklegast eptir þann 20. febr-26. s. m. Miklar við-
sjár með mönnum í meiri hlutanum. Vilja margir hverjir losna við Björn
ráðh. (andstæðingar hans í stjórnarflokknum sagðir 14 undir forustu Skúla
Thoroddsens og kannske einhverra annarra keppinauta hans um ráðherra-
embættið, en fylgismenn Bjarnar ráðherra 10), en vilja gjarnan einir hafa
sómann af því, án þess að minni hlutinn verði þar til kvaddur. En minni
hlutinn undir forustu L. H. Bjarnasonar vill einnig leggja orð í belg [og
fá sinn hluta af frægðinni fyrir að hafa velt ráðherra úr sessi]1 og í því
skyni bar L. H. Bjarnason [eptir miklar umleitanir við flokksmenn sína
í efri deild og þá menn í meiri hlutanum (Kristján Jónsson háyfirdómara
og Sigurð prest Stefánsson)]1 (sem virtust fáanlegir til þess að ljá minni
hlutanum fylgi sitt)2 tillögu til þingsályktunar um skipun nefndar sam-
kvæmt 22. gr. stjórnarskrárinnar til að rannsaka gerðir landsstjórnarinnar
í landsbankamálinu m. m. - Flutningsm.: Lárus H. Bjarnason. (Sjá Ed.
þingskjal 35). Mundi ef til vill tillaga þessi ýta undir meiri hlutann til
þess að gera alvöru að atför að ráðherra.
Frá Kaupmannahöfn er mjer skrifað 2/2 1911: Vonandi læmr kon-
ungur ekki binda hendur sínar við næsta ráðherraval. Það mun vera komin
1 Sett milli hornkl. af LHB sem alveg rangt.
2 LHB hefur strikað yfir þaS, sem stendur á milli sviga. J. G.
355