Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Blaðsíða 97
Ráðherradagar Björns Jónssonar
um. ísafold, sem kom út nokkru eptir að dómurinn kom út, gaf í skyn
að ráðherra mundi áfrýja dóminum til hæstarjettar.
Fimmtudaginn þ. 13. maí var dómur uppkveðinn í meiðyrðamálum,
sem Björn Jónsson ráðherra hafði hafið á hendur Tryggva Gunnarssyni
og Jóni Olafssyni fyrir meiðyrði. Hlaut Tryggvi 200 kr. sekt fyrir meið-
yrði um ráðherra og meiðyrðin dæmd marklaus, en Jón Olafsson ritstjóri
fjekk 150 kr. sekt í öðru málinu, en hinu var vísað frá sakir einhverra
formlegra galla, sem flytjandi málsins af hálfu ráðherra hafði gerzt sekur
í við flutning málsins. Þann sama dag var og haldin löng vitnaleiðsla í
máli sem Björn Jónsson ráðherra hafði hafið á hendur Lögrjetm og Reykja-
vík fyrir fregnmiða, sem blöð þessi höfðu sent út, er gaf ráðherra að sök,
að hann ljeti íslenzku skrifstofuna í Kaupmannahöfn breiða út lygafregnir.
Hafði málaflutningsmaður ráðherra (Sveinn Björnsson) stefnt L. H. Bjarna-
son, Þorleifi H. Bjarnason, Agúst Bjarnason, Birni M. Olsen, Jóni Krist-
jánssyni lagaskólakennara og Arinbirni Sveinbjarnarsyni bókbindara til
þess að bera vitni um Lækjartorgsfundinn þ. 28. nóv. 1909. Umboðsmaður
stefnanda lagði ýmsar spurningar fyrir þá bræður Lárus og Þorleif og stóð
vitnaleiðsla Lárusar yfir í fulla 3 tíma en Þorleifs 2Vi tíma. Voru margar
spurningar Sveins ærið klaufalegar, svo vitnin ljetu þeim ósvarað eða neit-
uðu beint að svara þeim. En Agúst vatt sjer undan að bera vitni með skír-
skotun til þess, að hann væri tengdasonur Jóns Olafssonar. Ætlaði Sveinn
að virða þessa undanfærsluástæðu að vettugi og heimtaði úrskurð, en brá
sjer þó áður en hann ítrekaði kröfu sína út í horn til fjelaga síns, Magnúsar
Sigurðssonar málfærslumanns, og hvíslaði hann einhverju að Sveini; að
því búnu hvarf Sveinn aptur að grindunum og sagði allhátt: „Að fengnum
upplýsingum fell eg frá úrskurði.“ Var þá ekki laust við, að ýmsir áheyr-
endur brosti. Yfirheyrsla Björns M. Olsen gekk greiðlega; en af því að
þá var svo áliðið orðið (kl. langt gengin tíu), var vitnaleiðslunni sem
eptir var frestað þar til 3. fimmtudags þar frá, að því er Páll lögreglu-
þjónn sagði mjer. Umboðsmaður stefnanda Ijet öll vitnin staðfesta fram-
burð sinn með eiði. Ohætt mun vera að fullyrða, að vitnin muni með
framburði sínum hafa í öllum höfuðgreinum staðfest frásögn Lögrjettu.
Aukaþingsáskorun þingmanna
Ymsar samþykktir um aukaþing og mót aukaþingi má lesa í heima-
stjórnarblöðunum og í Isafold og Fjallkonunni. Hirði eg ekki að geta
335