Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Blaðsíða 92
Tímarit Máls og mcnningar
kæmist á fót og hefði hann lagt fast að bankastjórunum og enda gæslu-
stjórunum við Landsbankann að ábyrgjast lánið franska, að upphæð 3
milliónir franka, sem skyldi vera stofnfje bankans, þar til reglulegt þing
kæmi saman, því að þá segði ráðherra að þingið og landsstjórnin mundi
velta ábyrgðinni af Landsbankanum yfir á landssjóðinn. En þeir sögðu að
bankastjórunum væri þetta óljúft mjög og stæði nú sem stæði í því stíma-
braki að verjast ásókn ráðherra og trúnaðarmanna hans, er sæktu málið
ákaflega fast. Mikið var og rætt um ýmis vanskil og fjársvik Þórðar læknis
Thoroddsen, er mundi nú vera svo langt leiddur, að líklegt væri, að hann
yrði að fara af landi burt til þess að komast ekki undir manna hendur.
Sakir brottfarar Hannesar Hafsteins og fyrirsjáanlegra fjærvista hans
um hríð, fólu miðstjórnarmenn Jóni ritstjóra Olafssyni formennskuna til
næsta fundar. Skyldi miðstjórn þá kjósa formann í fjærveru Hannesar
sem og að velja einhvern mann í hans stað, ef hún teldi það nauðsynlegt.
L. H. Bjarnason var sjúkur (í 5 vikur)1 og því ekki á fundi.
Eptir frásögn Þjóðólfs 23. mars var svohljóðandi tillaga í bankamálinu
samþykkt á fundi hins íslenzka stúdentafjelags 11. þ. m. í Kaupmanna-
höfn:
Þar sem rannsókn sú á hag Landsbankans, er farið hefir fram samkvæmt stjórnar-
boði og telja verður í sjálfu sjer rjettmæta, hefir orðið valdandi ýmissa athugaverðra
tiltækja frá hálfu landsstjórnarinnar, svo sem afsetningu gæslustjóranna, samfara
pólitískum flokksæsingi á báðar hliðar, telur fundurinn nauðsynlegt, að Alþingi
verði sem fyrst stefnt saman, svo að því gefist kostur á að láta til sín taka í þessu
máli, er því ber að fjalla um, jafnframt því sem það greiðir fyrir tryggilegri og
sæmilegri endalykt bankarannsóknarinnar.
Laugardaginn 2. apríl var fundur haldinn á Ljósavatni í Suður-Þing-
eyjarsýslu um bankamálið og um aukaþingskröfur. Fundinn sóttu 31 kos-
inn fulltrúi. Aukaþingskrafa samþykkt með 27 atkv. gegn 4.
Með norðanpósti 1. apríl kom svohljóðandi brjef til Eggerts Eiríkssonar
Briems, sem höfundur brjefsins Olafur alþingismaður Briem ætlaðist til
að þingmenn skrifuðu undir hver í sínu lagi og sendu síðan ráðherra:
Sakir þess að eg í samræmi við kjósendur mína álít nauðsyn bera til, að Alþingi
gefist sem fyrst kostur á að kynna sjer öll rök og aðgerðir stjórnarinnar í Lands-
bankamálinu og gera þær ráðstafanir, sem þinginu þykja nauðsynlegar, þá skora
eg á yður sem ráðherra að koma því til leiðar við Hans hátign konunginn, að Al-
1 (LHB).
330