Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Blaðsíða 23
Er vit í vísindum?
hverju tæknibragði sem tiltekinn málari, tónskáld eða leikritahöfundur
finnur upp á.25
Þessi þrjú viðmiðshugtök má kannski nefna þremur nöfnum: hið fyrsta
hefðarspeki, annað hefðarveldi, hið þriðja hefðarmið. Og má þá koma
nokkrum orðum að kenningu Kuhns um hefðbundin vísindi. Hefðbundin
vísindi stjórnast af viðmiðum, segir hann. Með mínum orðum eru slík
vísindi iðkuð á vettvangi hefðarvelda og mótuð af hefðarspeki sem ræðst
að drjúgu leyti af hefðarmiðum. Og af þessum orðum einum geta menn
ef til vill ráðið hvers vegna Popper er svo uppsigað við kenninguna um
hefðbundin vísindi: ef máttur hefðarinnar í vísindum er svo mikill sem
Kuhn vill vera láta, þá virðist ekki ýkjalangt í það að alls enginn greinar-
munur verði lengur gerður á vísindum og gervivísindum: þar sé aðeins
um ólíkar hefðir að tefla.
En nú mundu flestir vilja krefjast nánari skýringa. Ég skal reyna. Hug-
takið ,hefðarspeki‘ hef ég ekki eftir Kuhn, heldur eftir John Kenneth Gal-
braith sem hefur það um kerfisbundnar hugmyndir, einkum um þjóð-
félagsmál, sem menn halda tryggð við af öllum mætti vanans, hvað svo
sem raunhæfu gildi þeirra líður við síbreytilegar aðstæður.26 Ég þarf ekki
að nefna dæmi slíkrar hefðarspeki: þeir sem ekki kannast við hana fyrir
geta hlustað á forusmgreinar dagblaðanna í útvarpinu í fyrramálið. En til
marks um veldi hefðarspeki í vísindum mun ég láta mér nægja að leiða
fram tvö vitni. I formála að Uppruna tegundanna segir Darwin: „Þótt ég
sé sannfærður um kenningu þessarar bókar, þá á ég alls ekki von á að
reyndir náttúrufræðingar láti sannfærast: til þess vita þeir of mikið og
hafa vanizt því að líta það sem þeir vita allt öðrum augum en ég geri
hér. En ég treysti á framtíðina, á unga menn sem lesa bók mína óspjöll-
uðum augum.“ Og Max Planck segir í ævisögu sinni: „Vísindaleg kenn-
ing öðlast ekki viðurkenningu vegna þess að fræðimenn taki rökum og
geti skoðað viðfangsefni sín í nýju ljósi, heldur vegna hins að fræðimenn
deyja eins og aðrir menn, og ný kynslóð hefur aðrar og betri aðstæður til
að kingja kenningunni.“27 I þessum tveimur tilvitnunum birtist ekki
mikið traust til hinnar gagnrýnu skynsemi.
Hugtakið ,hefðarveldi‘ er félagsfræðilegt hugtak, sagði ég. Hefðarveldin
sem Kuhn hefur í huga eru stofnanir á borð við rannsóknaráð og háskóla-
deildir, fræðileg tímarit og málskrafsmót fræðimanna. A okkar dögum eru
slík hefðarveldi auðvitað mörg og margvísleg, og skipuleg könnun þeirra
261