Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Blaðsíða 104
Tímarit Máls og menningar
inn í landið, og eins að taka við málaleitunum þeirra manna í þá átt og
íhuga þær“.
Þegar Jón Jónsson frá Múla hafði undirskrifað brjefið, hvarflaði það í
hug hans, að þeir Jónarnir hefðu verið helzt til fljótir á sjer, og sama mun
að nokkru leyti hafa verið með hina tvo Jónana, og reri því í landritara
til þess fyrir áhrif hans að reyna að hafa hönd í bagga með, hvernig nefnd-
in yrði skipuð og sjerstaklega að koma í veg fyrir að Eggert Claessen og
Sveinn Björnsson, verkfæri E. B., kæmist í hana - en ráðherra mun hafa
virt fortölur Iandritara að vettugi og skipað nefndina eins og hagkvæmast
var fyrir Eggert Claessen og Svein, sem eru í þessu máli leppar E. B., sem
þótti ráðlegast til góðra úrslita að vera ekki opinberlega riðinn við mál
þetta.
[Grein Jóns Olafssonar í Rvík laugardag 24. sept. 1910 er að því leyti
skökk, að Jón Olafsson og hinir tveir Jónarnir munu ekki „hafa gengið
að því vísu, að stjórnin mundi til þess kveðja menn, er á engan hátt væru
sjálfir við riðnir þessu fyrirhuguðu fyrirtæki“, heldur munu þeir ekkert
hafa hugsað um það; það var fyrst er Jóni frá Múla var bent á það af
mjer og L. H. Bjarnason hversu þeir hefði farið gálauslega að ráði sínu,
að Jón í Múla, að vísu með samþykki J. Olafssonar og að eg held J. Magn.,
reri í landritara, en þá var það um seinan.]
Kvitturinn um, að Landmandsbanken í Kaupmannahöfn hefði sagt
Landsbankanum upp öllum viðskiptum frá nýári og að lífsábyrgðarfjelagið
Hafnia færðist undan að uppfylla samning þann, er það hafði gert við
Schou bankastjóra um kaup á nokkrum hundruðum þúsunda bankavaxta-
brjefa, er að sögn Þorsteins ritstjóra Gíslasonar rakinn til Páls Torfasonar
fjárglæframanns Sjálfstæðisflokksins. Kvittur þessi gekk staflaust um allan
bæinn 5.-7. sept.
Miðvikudagskvöldið þ. 7. sept. 1910 sagði efnafræðingur Asgeir Torfa-
son mjer eftir manni sem hafði talað við Klemens Jónsson landritara, að
landritari hefði sagt fullum fetum, að ráðherra Björn Jónsson ætlaði að
sækja um lausn frá ráðherrastarfinu um miðjan mánuðinn sakir heilsu-
brests og ætlaði að benda konungi á Björn Kristjánsson bankastjóra sem
ráðherraefni. Gerði Björn ráðh. það til þess að komast hjá vantraustsyfir-
lýsingu frá þinginu og jafnframt til þess að geta haft hönd í bagga með
útnefningu á eptirmanni sínum og um leið tryggt meirihlutanum, að ráð-
herrann yrði að sjálfsögðu tekinn úr honum. Nous verrons!
[Privat and confidential]. Föstudaginn þ. 9. sept. um morguninn talaði
342