Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 48
46
Lárus Sigurbjörnsson
Skírnir
og aftur 18. júní 1864: „gaf Jón Árnason félaginu síðara
bindi Þjóðsagnanna“. Bókagjafirnar voru ekki aðeins
vinarbragð af hálfu Jóns Árnasonar, heldur líka þakk-
lætisvottur. Kveldfélagar höfðu stutt hann rækilega í
söfnuninni, og eru 10 þeirra nefndir í höfundaskránni.
Tillögudrýgstur var Sigurður Guðmundsson málari með
sögurnar: Púkinn á kirkjubitanum, Líkaböng, Kerling
vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn og Hver rífur svo langan
fisk úr roði, auk ýmislegs annars, þar næst skólapilturinn
Matthías Jochumsson með söguna um sálina hans Jóns
míns og fleiri sögur, Markús Gíslason stúdent með fjórar
sögur, en aðrir með minna: Eiríkur Magnússon guðfræð-
ingur, Eggert Ólafsson Briem skólapiltur, Páll Sigurðs-
son skólapiltur, Jakob Björnsson stúdent, Jónas E. Jón-
asson faktor og lögregluþjónarnir Árni- Gíslason og Jón
Borgfirðingur. Þáttur kveldfélaga í hinu mikla verki Jóns
Árnasonar sýnir, eins og raunar kemur fram í stefnuskrá
þeirra, að þeir mátu þjóðleg fræði mikils, en án þess að
leggja fulla rækt við þau varð ekki „innlent menntalíf“
vakið. Félagið hugsaði um þessi efni. Eiríkur Magnússon
fékk samþykkta uppástungu um að safna alþýðukveðskap,
og er eitthvað hrafl af því safni í gögnum félagsins í
Landsbókasafni. Vorið 1881 las Jón Árnason ritgerð um
vikivaka á fundi, og nokkru fyrr, eða í apríl, var ein verð-
launaspurningin, sem lögð var fyrir félagsmenn, að yrkja
drápu um Fjalla-Eyvind.
Þegar félaginu hafði áskotnazt nokkur sjóður, styrkti
það útgáfu rita, sem fram höfðu komið í félaginu. Snemma
á árinu 1863 voru kappræður um Gissur jarl, og leiddu
þar m. a. saman hesta sína séra Sveinn Skúlason og Jón
Þorkelsson skólakennari. Gísli Magnússon stakk þá upp
á því, að þeir Sveinn og Jón semdu ritgerð um Gissur jarl,
„tók Sveinn því vel, en kvaðst jafnframt mundi skrifa um
Haukdæli“, en Jón Þorkelsson lofaði að semja „stutta lýs-
ingarritgerð um Gissur og færa félaginu við tækifæri“.
Þetta efndi Jón, og var ritgerð hans verðlaunuð með 20
rdl. úr félagssjóði (1865) cg kom út nokkru síðar eða