Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 71
Skírnir Jón Sigurðsson og stefnur í verzlunarmálum
69
samkeppni mjög lítið. Selstöðuverzlanirnar höfðu raun-
verulega ennþá einokunaraðstöðu á flestum verzlunar-
stöðum, en eigendur þeirra voru yfirleitt danskir kaup-
menn. Fyrstu tvo áratugina eftir að verzlunarfrelsið
komst á, var varla um innlenda verzlun að ræða.
Eins og fyrr hefur verið vikið að, aðhylltist Jón Sig-
urðsson kenningar hinnar frjálsu verzlunarstefnu og
beitti mjög rökum hennar til stuðnings máli sínu, er hann
stóð í baráttunni fyrir fullkomnu verzlunarfrelsi íslandi
til handa. Má þó vel vera, að þar hafi meiru ráðið, að rök
frjálsrar verzlunarstefnu hentuðu vel málstað íslands í
þessu efni á þeim tíma, heldur en fylgi við eða áhugi fyrir
grundvallarhugsjónum þeirrar stefnu. Það virðist a. m. k.
fljótt á litið hefði verið í beztu samræmi við þær skoð-
anir, er Jón Sigurðsson hélt fram í baráttunni fyrir verzl-
unarfrelsinu, að hann hefði fyrst og fremst beitt áhrif-;
um sínum til þess að íslenzk kaupmannastétt mætti kom-
ast á fót.
í fyrstu greinum sínum um verzlunarmálin í Nýjum
félagsritum, svo og í ræðum hans á Alþingi, þegar barátt-
an fyrir verzlunarfrelsinu var háð, virðist líka sem hann
hafi fyrst og fremst hugsað sér þá lausn verzlunarmál-
anna, að íslenzk kaupmannastétt myndaðist, er tæki við
störfum hinnar dönsku. En brátt varð það þó annað
verzlunarform, sem vakti áhuga hans, svo að mínu áliti
má segja, að það hafi verið aðalhugsjón hans eftir að sá
þáttur afskipta hans af verzlunarmálunum hófst, sem að'
innanlandsverzluninni sneri, að vinna að útbreiðslu þess.
En þetta verzlunarform var samtök almennings um út-
vegun vöru og sölu afurða, eða verzlunarfélögin eins og
þau þá voru nefnd. Má skoða samvinnuhreyfinguna sem
framhald þessara gömlu verzlunarsamtaka, að vísu í
nokkuð breyttri mynd.
Verzlunarsamtökin eiga sér alllanga sögu hér á landi,
eins og almenningi er nú kunnara en áður var, eftir að
hið merka rit Arnórs Sigurjónssonar „íslenzk samvinnu-
hreyfing 100 ára“ kom út árið 1944. Fyrsta verzlunar-