Skírnir - 01.01.1947, Page 194
192
Einar Ól. Sveinsson
Skírnir
eyðzt Skjaldbreið. Einn telji þá hafa eyðzt 40 bæi, en geti
ekki, hvar það hafi orðið. „Nú koma til enn tveir, sem
skrifa allt eins og þessir og eru samstemmandi um tím-
ann, að það hafi komið upp á sunnudaginn eftir jól, hafi
haldizt við fram að Pálsmessu og svo lengur fram eftir
vetrinum, með ösku- og sandfalli víða yfir land og þeim
leiftringum og eldgangi, að verkljóst hafi orðið þar af í
húsum, sérdeilis um Pálsmessuleytið, og kallað það Sturlu-
hlaup, sem eyðilagt hafi gjörvalla byggð á Mýrdalssandi
eða svo kallað Lágeyjarhverfi; eru þessir bæir nefndir
þeir stærstu, sem þá skyldi með öllu hafa aftekið: Dýra-
lækir, kann ske áður hafi heitið Rauðalækur, því þar er
í einum stað að finna þess háttar grjót; Holt, Lágey og
Lambey. Eru á sandinum tveir stórir sandhólar sinn hvoru
megin Blautukvíslar fyrir sunnan almenningsveg, hvar
Holt og Lágey skyldi hafa staðið, en Lambey þar suður
af; hvar nú kallast Lambajökull, svo stór byggð, að þar
hefði verið 50 hurðir á hjörum. Líklegt er, þar sem greindar
hæðir aldrei aftakast, að þar séu undir klettar eða einhverj-
ar sérdeilis mishæðir jarðarinnar. Við þeim átta fyrir-
taks bæjum, sem eru í Álftaveri þar fyrir austan, er sagt
þetta hlaup hafi ei hrært. Það er sagt þetta hlaup hafi svo
fljótt að komið, að ein prestsdóttir hafi fundizt við Dýralæki
með hárgreiðuna í höfðinu, með hverri hún var að kemba
sér, þá hlaupið kom.“ Síðan segir sr. Jón söguna af Sturlu,
líkt og Jón sýslumaður hafði gert. „LFm vorið eftir þetta
hlaup fóru menn að kanna þetta pláss, hvort ei fyndust
menn eða annað fémætt, og er þeir gengu þar um, er
Lambey hafði verið, heyrðu þeir gelta hund niðri í sand-
inum, þeir rifu þar til og fundu þar lifandi stúlkuskepnu,
sem hafði, þá hlaupið kom, verið send í einn fiskiklefa, en
hundur þessi rann með henni; varð hún þar inni teppt.
En sá alvísi guð hagaði því svo til, að hún hafði mitt niðri
í svoddan sandi og sífelldu myrkri nóga lífsnæringu, og
hvað meira er að segja, hún hafði rétt vitað, hver vika og
mánaðardagur var, þá hún var þaðan upp drepin; hafði