Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 167
Skírnir
Skáld og landshagir á 16. öld
165
hafa kotin í Grímsnesi ekki verið öll byggð 1524 fremur
en þau urðu eftir bóluna 1707. Vöntun á öreigum í Gríms-
nesi er því ekkert furðulegri 1524 en um 1930, en lýsing
Sigfúsar á örbirgð, sem stafi af jarðnæðisskorti, á við
aðrar þröngbýlli sveitir. Sextíu búendur voru þá í Gríms-
nesi 1703 og voru 1729 að verða nær eins margir á ný.
Um 1930 voru 8 býli Grímsneshrepps með 300 fjár eða
sum með þrjú hundruð stór, en 14 búendur höfðu 200 fjár
eða á 3. hundraði, líkt og margir höfðu 1524.
Kúabú Grímsnesinga voru hins vegar minni um 1930
en þau hafa verið 1524. Á móti 209 kúm, sem taldar eru í
hreppnum 1930, koma 567 nautgripir á sama svæði í
jarðabók Á. M., og varla er gerandi ráð fyrir minni naut-
gripafjölda haustið 1524. Arður af kúm er vitanlega ann-
ar nú og meiri en var, svo að þessi skakki kann að jafn-
ast með því.
Lauslega áætlaður afrakstur búskapar 1524 hefur víst
verið svipaður að verðmæti 1524 og 1930. En það er mun-
ur, að 1930 var meir en helmingur býla eign hreppsmanna
sjálfra, þar af 23 í sjálfsábúð, en árið 1708 var þar engin
jörð í sjálfsábúð og sennilega ekki heldur árið 1524. Það
var Skálholtsstóll og kirkjur, sem áttu % jarða í Gríms-
nesi árið 1708, en konungur og dreifðir eigendur Vís, og
kirkjueignin hefur öll verið komin á fyrir siðskiptin.
Velmegunin 1524 hrundi með fjárfelli næsta vetur. Sá
vetur var harður frá áramótum til sumarkomu, og menn
brast heyafla til að þola svo löng jarðbönn í Grímsnesi,
þar sem fullorðnu fé var mest ætlað að lifa á útigangi.
Grímsnes hefur aldrei náð sér síðan, segir í Biskupaann-
álum, eftir að öldinni var lokið.
Þetta ár, 1525, er ekki talið neitt háskaár í öðrum hlut-
um lands, sem heyjameiri voru. En hnignunin fór eina
götu alls staðar að lokum fyrir því. Fjárfjöldinn í Gríms-
nesi 1708 er að meðaltali einar 56 kindur á býli móti 120-
240 kindum á býli 1524 og 186 kindum á býli árið 1930,
samkvæmt jarðabókunum. Og efnahagUr í Grímsnesi 1708
er ekki fjarri að vera meðalsýnishorn af efnum alþýðu þá.