Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 236
II
Skýrslur og' reikningar
Skírnir
2. gr., tillaga um breyting á fyrri málsgrein 17. gr., var sam-
þykkt með 14 atkvæðum gegn 1.
3. -4. gr., tillögur um breytingar á síðari málsgrein 17. gr., voru
samþykktar með samhljóða atkvæðum.
5. gr., tillaga um bi'eyting á 20. gr., var samþykkt með samhljóða
atkvæðum.
6. gr., tillaga um breyting á 27. gr., var samþykkt með samhljóða
atkvæðum.
Nokkrar umræður urðu um einstakar tillögur.
2. Þá kvaddi sér hljóðs Guðbrandur prófessjjr Jónsson og gerði
fyrirspurn um útgáfu ritsins „íslenzkar æviskrár", hvort fulltrúa-
ráðið hefði ákveðið að gefa rit þetta út. Urðu nokkrar umræður
um þessa fyrirspurn, en síðan lagði Guðbrandur Jónsson fram eftir-
farandi tillögu til fundarsamþykktar: Fundurinn beinir því til
stjórnar félagsins, að hún skipi 5 manna nefnd, — þrjá úr sínum
hópi, tvo utan, — til að segja álit sitt um ævisagnasafn dr. Páls E.
Ólasonar áður en hún ákveður að birta það.
Dr. Einar Arnórsson bar fram breytingartillögu um, að 2 úr
stjórn og 1 utan skyldu skipaðir í þessa nefnd. — Tillagan um að
skipa nefndina var borin upp til atkvæða og felld með 7 atkvæðum
gegn 5, en Guðbrandur hafði fallizt á breytingartillöguna.
Guðbrandur Jónsson lét þá ósk i ljós, að þrátt fyrir þessa at-
kvæðagreiðslu yrði fulltrúaráð við ósk sinni um að láta kanna
áðurnefnt rit.
Síðan var fundargjörð lesin upp og samþykkt og að því búnu
var fundinum slitið.
Halldór Stefánsson.
Alexander Jóhannesson.
Tillögur um breytingar á Iögum Hins íslenzka bókmenntafélags.
1. gr.
Upphaf 13. greinar orðist svo: í fulltrúaráði eru 6 fulltrúar,
kjörnir um 6 ár, tveir og tveir í senn annaðhvert ár, eins og segir
í 17. gr. Ef fulltrúi deyr eða fer frá af öðrum ástæðum, o. s. frv.
2. gr.
Fyrri málsgrein 17. greinar orðist svo: Forseti og varaforseti
eru kosnir annaðhvert ár, um leið og fulltrúakosningar fara fram
(sbr. 13. gr.). Kjörstjóri annast um undirbúning þessara kosninga,
og skal hann ávallt vera einn af þeim fulltrúum, sem ekki eiga frá
að fara, þegar þær fara fram. Hann sér um, að í ársbyrjun, eigi
síðar en í janúai'lok, séu send eyðublöð undir kosningar þær, sem
fram eiga að fara, til hvers félagsmanns, og eru umboðsmenn fé-