Úrval - 01.12.1945, Blaðsíða 126
124
tJRVAL
um áhyggjufyllri um þig. Ertu
veikur? Hefir þú slasast?“
Ég reyndi að hliðra mér hjá
að svara þessu með því að segja,
að ég skildi óhappið með drátt-
arvélina. En þegar hér var kom-
ið, gat ég ekki snúið sveifinni
á tækinu lengur. Skeytið endaði
í miðju kafi. Dyer ritaði í dag-
bókina í Litíu Ameríku: „Byrd
virðist örmagnast, þegar hann
hefir sent nokkur orð.“ Undan-
brögð mín blekktu engan.
í dagbók minni, 6. ágúst,
stendur eftirfarandi: „Ég get
orðið vitlaus af að hugsa um
það, að eftir 66 daga hefi ég
látið óþolinmæði ná tökum á
mér . . . En ég vildi að ham-
ingjan gæfi, að bráðum fáist
skorið úr þessu á einn eða ann-
an hátt. Ég get ekki lifað við
þetta lengur, vongóður annað
veifið og vonsvikinn hitt . . .
nú fer ég að hátta og reyni að
hugga mig við það, að þeir verði
komnir hingað annað kvöld,
enda þótt ég viti að það er
fjarstæða."
*
J^G HAFÐI fyrir löngu undir-
búið blys og leiðarljós. Ef
ég gæfi engin ljósmerki, gat vel
farið svo, að Poulter og menn
hans færu rétt fram hjá kofan-
um án þess að sjá hann. Næsta
morgun bar ég upp úr kofanum
marga benzínbrúsa og magne-
síumblys. Ég fór eina ferð á
klukkustund. Ég var að byggja
síðasta vígi mitt, ef svo mætti
að orði komast.
Þessi einfaldi undirbúningur,
sem leiddi hugann frá sjálfum
mér og ástandi mínu, gerði mér
gott. Ég minntist þess, að ekki
myndu líða nema þrjár vikur,
þar til sólin kæmi upp, og ég
reyndi að ímynda mér, hvernig
það yrði. En ég gat ekki al-
mennilega gert mér það Ijóst.
Poulter lagði aftur af stað
hinn 8. ágúst. Klukkan fjögur
síðdegis næsta dag frétti ég, að
37 klukkustundir væru liðnar
frá því að hann lagði upp og
væri hann kominn 40 mílur
áleiðis.
Þegar ég kom út morguninn
eftir, þóttist ég viss um að ég
sæi Ijós í norðri. Ég dró Ijós-
drekann minn upp úr kofanum,
en hann var búinntilúrloftnets-
þræði og voru bundnar tuskur
á hann. Ég bleytti tuskurnar í
benzíni, kveikti í þeim, og
sveiflaði drekanum upp í loftið.
Þegar ég sá flugdrekann með
eldrófuna svífa í næturmyrkr-
inu, varð ég stóránægður. Þetta