Úrval - 01.02.1949, Qupperneq 8
6
ÚRVAL
farir hafa orðið á kostnað nátt-
úrunnar; í kjölfar þeirra hafa
komið örfok og hraðfara eyð-
ing auðlinda jarðarinnar á fáein-
um mannsöldrum.
Hér er annað dæmi um það,
hvernig náttúran krefur okkur
gjalds fyrir glæsilegustu sigra
okkar. Á næstliðinni öld hafa
framfarir í sumum greinum
læknisfræðinnar verið geysileg-
ar. En það er nú óðum að verða
ljóst, að þær framfarir eru dýru
verði keyptar. Mikill f jöldi fólks,
sem áður fyrr myndi hafa dáið
í bernsku, nær nú fullum þroska
og jafnvel háum aldri með hjálp
læknavísindanna. Af þessu með-
al annars fjölgar mannkyninu
nú með risaskrefum. Jafnframt
því sem frjósemi jarðarinnar fer
þverrandi, fjölgar fólkinu um
6000 á dag. En ef meirihluti
þeirra 2250 miljóna, sem nú lifa,
geta ekki fengið nægju sína,
hver verða þá örlög þeirra 3250
miljóna, sem eftir 50 ár munu
byggja þessa reikistjörnu?
Hinar tæknilegu framfarir
hafa einnig á öðru sviði verið
dýru verði keyptar, sviði and-
legrar heilsu einstaklinga og
þjóða. Svo er hagnýtum vísind-
um fyrir að þakka, að við getum
nú búið í skýjakljúfum, unnið
við óskeikular vélar í þriflegum
verksmiðjum, skemmt okkur
fyrirhafnarlaust með því að
opna fyrir útvarpið — o. s.frv.
Við getum ennfremur vænzt
þess að lifa lengur en forfeður
okkar, dauðsföllum meðal ung-
barna fer fækkandi og næmir
sjúkdómar gerast fátíðari. Og
hvernig bregðumst við við þess-
um einkennum framfaranna ?
Með síaukinni taugaveiklun í
margskonar myndum; með ört
fjölgandi tilfellum of psyko-
sómatískum1) truflunum, svo
sem magasári, asthma, æða- og
hjartasjúkdómum, gigt og syk-
ursýki. Eins og dr. Halliday
bendir á í bók sinni Psychoso-
cial Medicine, hafa þessir
psykosómatísku sjúkdómar
náð svo mikilli útbreiðslu, að
einna helzt verður líkt við skæða
farsótt. Þjóðir Vesturlanda eru
„sjúk þjóðfélög“, í upplausn fyr-
ir áhrif framsækinnar tækni-
menningar, sem eyðileggur heil-
brigt heimilis- og félagslíf, úti-
P Psykosómatískur er tiltölulega
nýtt orð í læknisfræðinni og er not-
að um líkamlega sjúkdóma, sem talið
er að eigi sér sálrænar orsakir. Orð-
ið er myndað úr grísku orðunum
,,psyke‘‘, sem þýðir sál, og ,,soma“,
sem þýðir líkami. — Þýð.