Úrval - 01.02.1949, Qupperneq 49
1 STUTTU MÁLI
47
Það var svissneskur verk-
fræðingur, M. Krebser að nafni,
sern af tilviljun uppgötvaði þessa
geymsluaðferð fyrir nokkrum
árum. Hann var staddur í Hima-
layafjöllunum og hafði fundið
þar nokkrar sjaldgæfar orkide-
ur, sem hann langaði til að kom-
ast með lifandi heim til Sviss.
Hann hafði litlar vonir um, að
það mundi takast, en þó lét hann
þær í trékassa, sem fóðraður var
innan með rökum mosa, sem
hann safnaði úti í skógi. Þeg-
ar hann kom til til Sviss, opn-
aði hann kassann og kom þá í
ljós, að blómin voru öll ó-
skemmd. Þetta varð til þess að
Krebser hóf tilraunir með
geymslu í mosa og rannsókn á
því, hvaða eiginleiki mosans
gerði hann sérstaklega hæfan
til að geyma í. Tilraunirnar tóku
nokkur ár, og komst Krebser
að raun um, að mosinn hefur
sérstaklega mikinn hæfileika til
að halda í sér stöðugu raka-
stigi, gefa frá sér raka eða taka
til sín raka úr andrúmsloftinu.
Einnig veldur uppgufunin því,
að hitastigið helzt tiltölulega
jafnt og lægra en ella. Þar við
bætist, að mosinn hreinsar og
endurnýjar loftið — hann and-
ar. Á stríðsárunum var þessi
geymsluaðferð tekin upp í Sviss
í allvíðtækum mæli og hefur gef-
izt vel. Ostur geymist einnig vel
í mosa.
— W.A.J. Wakely í „The Listener".
Keykingar.
Sem forhertur reykingamað-
ur hef ég alltaf verið á móti
reykingum. Ég viðurkenni hin
alvarlegu rök tóbaksbindindis-
félaganna fyrir afnámi þeirra.
Ég véfengi enga af þeim sönn-
unum, sem sýna fram á, að reyk-
ingar séu löstur og óhóf. Ég hef
haft mikla ánægju af að lesa
um hina umfangsmiklu og ýtar-
legu rannsókn Hultonblaðaút-
gáfunnar á málinu. Enska þjóð-
in eyðir 100 milljónum króna í
tóbak á viku, segir í skýrslunni.
Fjórir af hverjum fimm karl-
mönnum eru reykingamenn, og
tvær af hverjum fimm konum
reykja að meðaltali 6V2 sígar-
ettu á dag — of lítið til að það
borgi sig að reykja það, en nægi-
legt til að valda skorti á tóbaki.
Svo virðist sem tekjur manna
hafi lítil áhrif á reykingar
þeirra. Það er jafnmikið af mikl-
um reykingamönnum (þeim sem
reykja 23 til 43 sígarettur eða
23 til 45 grömm af píputó-
baki á dag) meðal þeirra, sem