Úrval - 01.02.1949, Síða 25
BYLTING 1 PRENTLISTINNI
23
settur á, myndast straumur raf-
einda, sem dregur farfann frá
prentfletinum yfir á pappírinn,
og sezt hann á pappírinn sem
bókstafir. Annar rafmagns-
straumur hefur áður hlaðið farf-
ann frádrægu rafmagni og papp-
írinn viðlægu rafmagni. Þegar
vélin er í gangi, má sjá, hvern-
ig farfinn á prentfletinum flýg-
ur yfir á pappírinn og pappírs-
flöturinn dregst að prentfletin-
um. En ef straumurinn, sem
hleður prentflötinn og pappírinn
frádrægu og viðlægu rafmagni,
er rofinn, og vélin er látin ganga
áfram, sér maður, að engin
,,prentun“ á sér stað, því að
tengslin milli prentflatar og
pappírs eru rofin.
Það er straumstyrkleikinn,
sem mestu ræður um þessa prent-
un. Ef prentunin er dauf er
spennan aukin, og þá flýgur
meiri farfi af prentfietinum yfir
á pappírinn. Það er engin hætta
á, að prentflöturinn eyðist, eins
og oft á sér stað í venjulegri
prentvél, því að það mæðir ekk-
ert á prentfletinum; hið eina
sem snertir hann er farfasívaln-
higurinn.
Rafeindapressan getur prent-
að á pappír beggja megin sam-
tímis og með furðulegum hraða.
Sem dæmi má nefna, að upplag,
sem er 200 klukkutíma verði að
offsetprenta með gömlu aðferð-
inni, má prenta á 6 tímum með
nýju aðferðinni.
Þar við bætist, að þessar vél-
ar eru þegar komnar á markað-
inn, og þær eru ekki fram úr
hófi dýrar. Sannleikurinn er, að
sá sem vill koma upp blaði og
prentsmiðju frá grunni, getur
lækkað stofnkostnaðinn um
þriðjung með því að hagnýta sér
hinar nýju aðferðir.
Ef við viijum að lokum taka
verulega djúpt í árinni, þá mætti
komast að orði eitthvað á þessa
leið: Þessi nýja aðferð á ekkert
skylt við prentun, því að hér er
ekki „prentað" með svertu á
pappír. Þessvegna hefur höf-
undur hennar gefið henni nýtt
nafn: ,,Electro-Migratetic“. Með
þessu segir hann ekki, að hand-
ritið hafi verið „prentað" á
pappírinn, heldur „flutt“ yfir á
hann með rafmagni (migrate
þýðir að flytja). Ef rafeinda-
pressan nær útbreiðslu getur svo
farið, að orðið „prentun" verðir
úrelt og hverfi úr málinu.
•¥•