Úrval - 01.02.1949, Blaðsíða 36
34
•ORVAL
sem þú hefur gert til að bjarga
því. Og ég fullvissa þig um, að
þú munt glata því. Og með þeim
hraða, sem nú er á þér, á það
ekki langt eftir.
En fyrir mörgum öldum var
einn maður, sem gat sagt: „Þvt
aö hver sem bjargar lifi sínu
mun glata því; og hver sem glat-
ar lífinu mtn vegna, mun finna
þaö. Því aö hvaö stoöar þaö
manninn, þó aö hann, vinni all-
an heiminn og glati sál sinni?
eöa hvaö á maöur aö gefa t
skiptum fyrir sál sina?“
Mannssálin er, eins og allt
annað, sköpuð til þess að hún
sé notuð. Ef hún er ekki notuð
til þess, sem hún er ætluð, þá
hrörnar hún. Öldum saman voru
rnennirnir alls ófróðir um, til
hvers sálin var. En loks kom
þessi eini maður, sem þekkti til
fulls gildi mannssálarinnar, og
hann sýndi, hvernig átti að nota
hana. Loks gátu mennirnir sjálf-
ir séð í hinu fullkomna lífi þessa
manns, hvaða möguleikar
bjuggu í þeirra eigin sál.
Það var aðeins eitt skilyrði:
Fyrsta skrefið krefst trúar. Þú
verður að vera sannfærður um,
að þessi maður, Jesús Kristur,
hafi raunverulega verið hin
rétta fyrirmynd — með öðrum
orðum, að guð sjálfur hafi birzt
í lífi hans. Og þegar þú hefur
sannfærzt um það, þá verðurðu
að taka trúanleg orð hans um,
að eina rétta notkun sálarinn-
ar sé að glata henni — bjóða
guði hana af frjálsum vilja,.“
,,Það var gott og blessað í
gamla daga,“ sagði Oddsock.
„En við nútímamennirnir erum
hagsýnir. Við viljum hafa trygg-
ingu fyrir fjárfestingu okkar.
Er nokkur trygging fyrir því að
salan geti gengið til baka?“
„Betra en það,“ sagði engill-
inn. „Það er trygging fyrir því,
að þú getir fengið sálina aftur.
Með því að þú ert hagsýnn mað-
ur, muntu skilja gildi góðrar
stjórnar. Þeir sem afhenda guði
stjórn sálu sinnar, komast að
raun um, að þá fyrst geta þeir
kallað hana sína eigin sál. Þeir
finna í fyrsta skipti fullkomið
öryggi. Með því að glata sjálf-
um sér í hjálp til annarra, losna
þeir við allar áhyggjur, sem
ýmsir hafa út af sjálfum sér.
Þeir eru einu mennirnir, sem
notið geta lífsins til fulls. Samt
eru þeir einu mennirnir, sem eru
þess albúnir að sleppa tilkalli
til lífsins, ef þörf krefur. Þeir
hafa uppgötvað, að til er meira
böl en þjáningar og meiri gæfa