Úrval - 01.02.1949, Síða 109
FRÆÐSLA 1 FEIMNISMÁLUM
107
sjálf að leita að Jake.Þegarfarið
var að skrafa um að Jake væri
í „slæmum félgsskap", tók hún
dálitla peningaupphæð út úr
bankabókinni, og fór föl og þög-
ul með lestinni til borgarinnar,
þar sem sagt var að hann dveld-
ist.
Nokkrum vikum seinna kom
hann heim, með henni. Og stúlku-
laus. Hún hafði losað hann úr
þeim viðjum — eins og hún
gerði raunar oft síðar. Vandræð-
um hennar virtist lokið, þegar
hann á „réttum“ aldri varð ást-
fanginn af ,,réttri“ stúlku,
kvæntist henni og fór að búa í
borg, sextán mílur í burtu, þar
sem hann hafði góða stöðu. Jake
var svo sem alltaf skynsemdar-
piltur.
Stundum var fólk að velta því
fyrir sér, hvað kornið hefði fyr-
ir Minnie frænku, þegar hún fór
að sækja son sinn, hvert hún
hefði komizt í leit sinni — okk-
ur fannst það skrítið, að Minnie
frænka skyldi hafa komið á slíka
staði, sem við höfðum í huga. Og
hvað gat svo fávís og heima-
vön kona hafa sagt við villu-
ráfandi og þrjózkan pilt, svo að
hann sæi að sér?
Enþegar við íhuguðumbaráttu
hennar við afglöp Jake síðar,
varð okkur Ijóst, að hún gat ekki
hafa verið fávís lengi, eftir að
hafa séð, hvað eftir annað, það
sem hún haf ði séð; eftir að haf a
margsinnis rætt opinskátt við
Jake um bresti hans og yfir-
sjónir.
Hún leitaði aldrei ráða hjá
öðrum. Við vissum aldrei ná-
kvæmlega, hvað fyrir hana hafði
borið né hvers hún hafði
orðið áskynja. En dag nokkurn
sagði hún nokkrum okkar —• við
vorum allar giftar, -— dálítið,
sem gaf okkur hugmynd um
það, sem hún hafði lært af
reynslu sinni.
*
Við vorum að sauma barna-
föt fyrir fátæka fjölskyldu, þar
sem von var á erfingja, sem var
ekki neitt sérstaklega velkominn
í heiminn. Um þetta leyti voru
engar heimilishjúkrunarkonur í
borginni okkar. Minnie frænka
var orðin hálfsextug og enn
mesti forkur, og hún gekkst fyr-
ir hjálparstarfinu. Meðan við
vorum að sauma, spjölluðum við
auðvitað saman; og af því að
dætur okkar voru á æskuskeiði,
bárum við ráð okkar saman um
þá miklu ábyrgð, sem hvílir á
uppalendum ungra stúlkna.
Eftir nokkra stund sagði