Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 76
74
Árbók Háskóla íslands
Prófessor Leif Grane hefur haft náin
tengsl við guðfræðideild Háskóla Islands,
haldið hér fyrirlestra og tekið þátt í dómnefnd-
arstörfum. Eins hefur hann greitt götu ís-
lenskra guðífæðinga, sem dvalist hafa í Kaup-
mannahöfn. Af þessum sökum telur Háskóli
íslands sér það sæmdarauka að heiðra Leif
Grane með titlinum doctor theologiae hon-
oris cattsa. Sé það góðu heilli gert og vitað.
Duncan Baillie Forrester, 25. október 1997
Duncan Baillie Forrester fæddist 10.
nóvember 1933. Hann lauk M. A. prófi í
stjórnmálaíræði og nútímasögu við háskól-
ann í St. Andrews í Skotlandi 1955, stundaði
framhaldsnám í stjórnmálaffæði við Chi-
cagoháskóla 1955-1956 og lauk B. D. prófi í
guðfræði frá New College við Edinborgarhá-
skóla 1960. Árið 1976 lauk hann doktors-
prófi við háskólann i Sussex. Doktorsverk-
eíhi hans var um stéttaskiptingu og kristna
trú á Indlandi og ber titilinn Caste and
Christianity. Á árunum 1962-1970 var
Duncan B. Forrester kristniboði á Indlandi og
prófessor í stjórnmálafræði við Madras
Christian College. Hann var háskólaprestur
og lektor í stjómmála- og trúarbragðaífæðum
við Sussex-háskóla 1970-1978, og frá 1978
hefur Duncan B. Forrester verið prófessor í
kristinni siðfræði og kennimannlegri guð-
ffæði við háskólann í Edinborg. Þar var hann
einnig forstöðumaður New College á árunum
1986-1996 og veitti forstöðu rannsóknar-
stofnun um guðfræði og þjóðfélagsmál.
Rannsóknir prófessors Forresters hafa
beinst að tengslum guðfræði og þjóðfélags-
mála, og hann hefúr komið á fót framhalds-
námi í guðfræði og fjölmiðlasiðfræði. Þá
hefúr hann fjallað mikið um guðfræði og
málefni þróunarríkja. Hann hefur hlotið
alþjóðlega viðurkenningu fyrir rannsóknir
sínar og skrifað fjölda bóka, einkum á sviði
guðfræði og þjóðfélagsmála. Duncan For-
rester hefur einnig tekið mikinn þátt í sam-
kirkjulegu starfi og setið í nefnd Alkirkju-
ráðsins um trú og skipulag (Faith and Order).
Prófessor Duncan B. Forrester hefur haft
mikil og góð tengsl við guðfræðideild
Háskóla Islands, haldið þar fyrirlestra og
greitt götu margra íslenskra guðfræðinga í
framhaldsnámi við Edinborgarháskóla. Af
þessum sökum telur Háskóli íslands sér það
sæmdarauka að heiðra Duncan Baillie For-
rester með titlinum doctor theologiae hon-
oris causa. Sé það góðu heilli gert og vitað.
Heimspekideild
Lars Huldén, 17. júní 1996
Lars Huldén er fæddur i Jakobstad í Finn-
landi 5. febrúar 1926 og er því nýlega orðinn
sjötugur. Hann lauk doktorsprófi í norrænum
málum (nordisk filologi) 1957, og er doktors-
ritgerð hans um sagnbeygingar í sænskum
mállýskum í Austurbotni (Verbböjningen i
Österbottens svenska folkniál - I). Huidén
kenndi við Háskólann í Helsinki frá 1956 til
1989, fyrst sem lektor, þá dósent, og prófessor
hefur hann verið frá 1964. Lars Huldén er
afkastamikill fræðimaður í norrænum málvís-
indum. Hann hefúr einkum rannsakað sænsk-
ar mállýskur í Finnlandi og mál sænskumæl-
andi innflytjenda í Ameríku og sænsk örnefni
í Finnlandi. Hefur hann þá oft hagnýtt sér
kunnáttu sína í íslensku máli sínu til stuðn-
ings. Huldén hefur einnig látið til sín taka sem
bókmenntaíræðingur og hefúr þá einkum
ritað um sænska skáldið Bellman, og ber þar
hæst rit hans Carl Michael Bellman (1994).
Auk fræðistarfa er Lars Huldén eitt þekktasta
ljóðskáld sænskumælandi Finna. En hann
hefur einnig samið smásögur og leikrit og þýtt
heimsbókmenntir á sænsku, þar á meðal leik-
rit eftir Moliére (L 'Étourdi) og Shakespeare
(Twelfth Night). í skáldskap sínum hefúr Hul-
dén vikið að Islandi í ljóðum og sögum, og
hann hefur ort ljóðaflokk, sem nefnist Island i
december. Lars Huldén hefúr gegnt ýmsum
trúnaðarstörfúm, verið formaður Finlands
svenska forfattareforening 1971-1978, for-
maður Svenska litteratursallskapet i Finland
1983-1992, setið í dagskrárstjórn finnska rík-
isútvarpsins (YLE), átt sæti í bókmennta-
nefnd finnska ríkisins 1968-1970 og í stjórn
Norræna þýðingasjóðsins 1975-1992. Lars
l luldén stuðlaði mjög að því, að tekin var upp
kennsla í nútímaíslensku við Háskólann '
Helsinki og að ráðinn var íslenskur sendi-
kennari þar. Af þessum sökum telur Háskóh
íslands sér það sæmdarauka að heiðra pro-
fessor Lars Huldén með nafnbótinni doctor
philosopliiae honoris causa. Sé það góðu
heilli gert og vitað.