Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 78
76
Árbók Háskóla íslands
annars um íslenska þjóðfélagsþróun, skipu-
lagt og stjómað viðamikilli langtímarann-
sókn á íslenskum börnum og unglingum.
Hann hefur starfað með fjölmörgum ís-
lenskum fræðimönnum, hvatt þá til fram-
haldsnáms og stutt í hvívetna.
Wolfgang Edelstein hefur tekið virkan
þátt í umræðu um skóla- og menntamál á
Islandi. Hann var ráðgjafi skólayfirvalda í
Reykjavík á sjöunda áratugnum og sérstakur
ráðgjafi menntamálaráðherra í nær tvo ára-
tugi. Hann beitti sér fyrir faglegri umræðu
um skólamál, skrifaði fjölda greina og flutti
mörg erindi um mennta- og uppeldismál á
Islandi. Wolfgang kemur víða við í verkum
sínum og hefur meðal annars látið til sín taka
í umræðu um breytt hlutverk skóla, lagasetn-
ingu um skólamál, endurnýjun námsefnis og
kennaramenntun. Af þessum sökum telur
Háskóli Islands sér það sæmdarauka að
heiðra Wolfgang Edelstein með nafnbótinni
doctor scientiae rerum socialium honoris
causa. Sé það góðu heilli gert og vitað.
Verkfræðideild
Loftur Þorsteinsson, 17. júní 1995
Loftur Þorsteinsson er fæddur 23. apríl
1925. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1945, fyrri hluta
prófi í verkfræði frá Háskóla íslands árið
1948 og prófi í byggingarverkfræði frá Dan-
marks Tekniske Hojskole í Kaupmannahöfn
árið 1951. Loftur var verkfræðingur hjá raf-
orkumálastjóra 1951-1954, en réðst þá til
starfa hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thorodds-
en sf. Hann var staðarverkfræðingur við
byggingu Grímsárvirkjunar 1955-1957 og
átti ríkan þátt í að móta nútímalegar aðferðir
við undirbúning virkjanaframkvæmda, sem
byggjast á fræðilegum rannsóknum. Hann
fékkst einnig við hönnun burðarvirkja og
mótaði vinnuaðferðir á sviði burðarþolsfræði
og landmælinga. Árið 1961 varð Loftur eftir-
maður Finnboga Þorvaldssonar, prófessors í
burðarþolsfræði og landmælingum við verk-
fræði- og raunvísindadeild Háskóla íslands,
og því starfi gegndi hann til ársins 1975.
Loftur var eini verkfræðimenntaði prófessor-
inn við deildina á þessum tíma. Hann þróaði
nýjar kennsluaðferðir og gaf út kennsluefni í
þeim fjölmörgu námsskeiðum, sem hann sá
um. Hann átti mikinn þátt í að undirbúa fjög-
urra ára nám til verkfræðiprófs við Háskóla
Islands og að fylgja því úr hlaði eftir sam-
þykkt reglugerðar um það árið 1971. Loftur
fékk lausn frá embætti árið 1975, þegar hann
gerðist framkvæmdastjóri Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen sf. Síðustu tvo áratugi
hefur starf hans í ríkum mæli beinst að athug-
unum á vatnsorkuforða og kostnaði við
nýtingu hans. Veigamikill þáttur í því starfi
hefur verið gerð hönnunarforsendna til að
stuðla að markvissri og samræmdri áætlana-
gerð, einkum á frumstigi slíkra áætlana.
Loftur reyndist verkfræðideild traustur bak-
hjarl, meðan hann starfaði þar. Hann var for-
seti verkfræðideildar 1967-1969 og sinnti
jafnan málefnum hennar af mikilli alúð. Af
þessum sökum telur Háskóli íslands sér það
sæmdarauka að heiðra Loft Þorsteinsson
með titlinum doctor technices honoris causa.
Sé það góðu heilli gert og vitað.
Raunvísindadeild
Guðmundur Arnlaugsson, 17. júní 1995
Guðmundur Arnlaugsson er fæddur L
september 1913 í Reykjavík. Hann varð stúd-
ent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1933 og
stundaði nám við háskólann í Kaupmanna-
höfn 1933-1936 og 1939-1942. Þar lauk hann
árið 1942 cand. mag. prófi með stærðfræði
sem aðalgrein og eðlisfræði, efnafræði og
stjörnufræði sem aukagreinar, auk þess sem
hann lauk prófi í kennslutækni. Guðmundur
var stundakennari við Menntaskólann á
Akureyri 1936-1939 og við menntaskóla i
Oðinsvéum og Kaupmannahöfn 1942-1945.
Hann var kennari við Verzlunarskóla Islands
1946-1947 og kennari við Menntaskólann j
Reykjavík 1945-1965; yfirkennari þar frá
1959. Rektor Menntaskólans við Hamrahlíð
var hann frá stofnun 1965 til 1980. Guð-
mundur kenndi stærðfræði í verkfræðideild
Háskóla íslands 1947-1967 og eðlisfræði til
B. A. prófs. Hann var dósent í verkfræðideild
1962-1967. Guðmundur var námsstjóri J
stærðfræði og eðlisfræði 1964-1966, sat j
landsprófsnefnd 1948-1966 og var ritarí
raunvísindadeildar Vísindasjóðs 1958-1980-
Guðmundur sat í stjórn Félags menntaskóla-