Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 243
241
skóla íslands er um 75% af því, sem
erlendis telst viðunandi.
• Afleiðingar niðurskurðar undanfarinna
ara hafa m. a. birst í því að valnámskeið
hafa verið felld niður svo og umræðutímar
°g raunhæf verkefni, auk þess sem verk-
leg kennsla hefur dregist saman. Fjöldi
nemenda sem hver kennari verður að
sinna er svo mikill að ekki gefst tími til
viðræðna og handleiðslu eins og þörf er.
Framboð námsgreina verður of fábreytt,
namsefni ekki endurnýjað og nýjar grein-
ar ekki teknar upp.
Ljóst er af þessu að Háskóli íslands hefur
dregist aftur úr á síðustu árum. Erlendis
eiga nemendur val milli háskóla og einn
slakur háskóli ræður því ekki úrslitum um
háskólamenntun viðkomandi lands. Þessu
?r ekki þannig varið hérlendis. Háskóli
Islands er eina miðstöð háskólamenntunar
j °S gmnnrannsókna hér á landi.
Háskólaráð bendir á að hnignun háskóla,
sem er óhjákvæmileg afleiðing skertra
Oárveitinga, tekur skamman tíma og það
er siður en svo auðvelt að snúa þeirri
proun við. Endurreisn getur orðið mjög
íorveld því að uppbygging vísindastofn-
g p0.3 teLur langan tíma.
jöldatakmarkanir munu ekki leysa
7 fjárhagsvanda Háskólans.
Haskóli Islands er ein stærsta stofnunin í
samfélagi okkar. Þar vinna 5.500 nemendur
500 starfsmenn auk stundakennara.
Haskólinn er lykilþáttur í íslensku atvinnu-
'fi °g menningu. Viðskiptafræðingar, lög-
rræðingar og verkffæðingar stýra flestum
stærstu fyrirtækjum og stofhunum lands-
lns- An kennslu og rannsókna við Háskól-
ann væri ekki hægt að halda heilbrigðis-
8 °g menntakerfinu gangandi.
askólaráðmótmælirþvíeinnigaðífjár-
agafrumvarpi er ekki séð fyrir nægjan-
e8u rekstrarfé til hins nýja Landsbóka-
safns. Byggjng Þjóðarbókhlöðunnar hefúr
ekið yfir 20 ár og nú, þegar henni er
°hið, vantar verulegan hluta nauðsynlegs
rekstrarfjár. Þessi stefna er algjörlega
ovíðunandi. Háskóli íslands er í 19. sæti
a 20 sambærilegum háskólum hvað
"arQðar bóka- og tímaritakaup á árinu
, V. Hér ber enn að sama brunni.
n°gar fjárveitingar draga mátt úr stofn-
uninni og háskóli án öflugs bókasafns á
erfitt um rannsóknir.
9. Háskóli Islands hefur haft það orð á sér á
síðustu áratugum að vera góð kennslu-
stofnun og jafnframt hefúr verið reynt af
vanefnum að byggja upp rannsóknir í
samræmi við alþjóðlegar kröfur. Nem-
endum hefúr gengið vel að komast í fram-
haldsnám við góða háskóla erlendis.
Kennarar Háskólans eru flestir mjög vel
menntaðir, m. a. með margvíslega fram-
haldsmenntun við þekkta háskóla. Aukin
tengsl við erlenda háskóla og stofnanir
gera sífellt meiri kröfur til Háskóla
Islands um gæði kennslu og rannsókna.
Þess er ekki að vænta að Háskóla íslands
takist að halda góðum kennurum og fá
nýja vísindamenn til starfa ef stefna
stjórnvalda í Ijárveitingum til hans breyt-
ist ekki. Háskóli íslands er í alþjóðlegri
samkeppni um góða starfsmenn.
10. Samkeppnishæfni þjóða á næstu öld, í
sífellt opnari þjóðfélögum, mun fyrst og
fremst ráðast af menntun þegnanna, ekki
síst fæmi til nýsköpunar á gmndvelli vís^
indalegrar þekkingar. Ef Háskóli Islands
verður ekki efldur á næstu árum, mun það
koma fram í verri lífskjörum landsmanna,
brottflutningi hæfra kennara og nemenda
og lakari kennslu og rannsóknum. Það
getur orðið álitamál hve lengi erlendir
háskólar taka prófgráður frá Háskóla
Islands gildar.
íslendingar hafa verið stoltir af Háskóla
sínum og það með réttu. Þetta getur breyst og
háskólaráð getur ekki staðið hjá aðgerðalaust,
þegar stefnir í verulega hnignun Háskólans
vegna ónógra ijárveitinga. Háskólaráð styður
aðgerðir Félags háskólakennara og samtaka
stúdenta við að vekja máls á vandanum og
berjast fyrir hagsmunum Háskólans.
Háskólaráð mun óska effir fundi með for-
sætisráðherra, fjármálaráðherra og mennta-
málaráðherra, þar sem málefni Háskólans
verða rædd. Þar verður lögð áhersla á, að í
fjárlögum næsta árs verði framlag til Háskól-
ans aukið frá fjárlagafrumvarpi um a. m. k.
200 millj. kr. og að gerð verði áætlun til
næstu ára um aukið fé til starfsemi Háskóla
Islands. Jafnframt leggur háskólaráð áherslu
á, að fullnægt verði þörfum Landsbóka-
safns - Háskólabókasafns fyrir rekstrarfé."