Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Qupperneq 250
248
Árbók Háskóla íslands
fjárveitingar til kennslu. Halldór gerði grein
fyrir vinnu, sem Vísindanefnd hafði lagt í að
móta tillögur um skipun rannsókna og stofn-
ana Háskólans. Halldór og Örn svöruðu fyr-
irspurnum, og var almenn ánægja með álitið.
20.03.97: Ingjaldur Hannibalsson, nefndar-
maður í Fjármálanefnd, kom til að ræða drög
að áliti Fjármálanefndar um fjárveitingar til
rannsókna og rannsóknarnáms við Háskóla
Islands, dags. 7. janúar sl., en drögin voru
fyrst kynnt á fundi ráðsins 9. janúar sl. Sig-
rún Aðalbjarnardóttir, formaður Vísinda-
nefndar, greindi frá umsögn nefndarinnar um
drögin. Vísindanefnd fagnaði því, að þetta
álit skyldi vera komið fram og taldi, að þær
hugmyndir, sem þar væru fram settar, myndu
efla rannsóknir og rannsóknamám við Há-
skóla íslands. Ingjaldur Hannibalsson skýrði
álitið og greindi frá þeim viðtökum, sem það
hafði fengið á fundum með fulltrúum
menntamálaráðuneytisins og íjármálaráðu-
neytisins. Álitið var rætt og svofelld bókun
samþykkt einróma: „Háskólaráð fagnar
framlögðu áliti Fjármálanefndar um fjárveit-
ingar til rannsókna og rannsóknarnáms við
Háskóla íslands og felur henni að nota það
við gerð fjárlagatillagna fyrir næsta ár.“
16.04.97: Örn Helgason, formaður Fjármála-
nefndar, og Ingjaldur Hannibalsson, nefndar-
maður, komu á fund, og lagði Örn fram vinnu-
plagg vegna fjárlagatillagna Háskóla íslands
fyrir árið 1998. Örn skýrði málið, og þar kom
fram, að samkvæmt reiknilíkani þyrfti Há-
skólinn 1.225 m. kr. til kennslu og sömu fjár-
hæð til rannsókna. Háskólinn fengi hins vegar
1.038 m. kr. til kennslu og 678 m. kr. til rann-
sókna. Lagt var til, að fjárveitingar til Háskól-
ans hækkuðu um 250 m. kr. á fjárlögum ársins
1998, þar af um 95 m. kr. til kennslu og 155 m.
kr. til annarra þátta, rannsókna, rannsóknar-
náms, reksturs fasteigna, ritakaupa og
Alþjóðaskrifstofú háskólastigsins og með
áherslu á, að rannsóknarnámið hefði forgang.
Málið var rætt ítarlega, og voru viðbrögð ráðs-
manna almennt jákvæð. Örn og Ingjaldur
svöruðu athugasemdum og fyrirspurnum,
sem fram komu. Fjárlagatillögur ársins 1998
yrðu aftur á dagskrá næsta fundar.
30.04.97: Örn Helgason gerði grein fyrir
framlögðum tillögum Fjármálanefndar um
hækkun á fjárveitingum til Háskóla íslands
fyrir árið 1998. Lagt var til, að fjárveitingar
ykjust um 250 m. kr. og skiptust þannig,
til kennslu kæmu 95 m. kr., til rannsókna 112
m. kr. og 43 m. kr. til annarra þátta; rita-
kaupa, reksturs fasteigna og Alþjóðaskrif-
stofii háskólastigsins. Tillögurnar voru rædd-
ar og samþykkt, að Fjármálanefndin notaði
þær við gerð endanlegra tillagna sinna.
03.09,97: Halldór Jónsson, deildarstjóri rann-
sóknarsviðs, kom á fund, en fyrir lá tillaga
Vísindanefndar um skiptingu fjár til rann-
sóknarnáms á milli deilda. Lagt var til, að fjár-
veitingum yrði skipt í hlutfalli við: 1) fjölda
framhaldsnema í deild; 2) fjölda „A‘
umsókna frá deild til Rannsóknarnámssjóðs;
og 3) Qölda brautskráðra framhaldsnema a
tveimur undangengnum háskólaárum. A
þessu ári var aðeins tekið tillit til liða 1) og 2)-
Tillögur Vísindanefndar voru samþykktar, en
forseti verkfræðideildar lét bóka, að fjárveit-
ingarhluti hverrar deildar ætti að renna
óskiptur til deildar, sem síðan ákvæði, hver
um sig, hvemig fénu yrði deilt innan deilda-
13.11.97: Rektor greindi frá fúndi með fjár-
laganefnd Alþingis 5. þ. m. og skýrði áherslur
Háskólans um aukningu ijárveitinga til sko
ans. Fyrir lágu gögn um fúndinn. Hels'11
áhersluatriði Háskólans vom: 1) rannsóknar-
nám; 2) ljármunir til tölvuvæðingar; og