Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Qupperneq 260
258
Árbók Háskóla íslands
kennslu- og stjórnunarstarfa hækki úr48 klst.
í 60 klst. á mánuði.“ Þessa sé gætt við gerð
kennsluskrár fyrir skólaárið 1997-1998.“
Málið var rætt og frestað.
Prófessor í fiskifræði
13.10.94: Skv. bréfi mrn., dags. 3. f. m., var
Jakobi Jakobssyni falið að gegna prófessors-
embætti í fiskifræði við líffræðiskor raunvís-
indadeildar Háskóla Islands um þriggja ára
skeið frá 1. september 1994 að telja jafnhliða
forstjórastarfi við Hafrannsóknastofnunina.
Með vísun til bréfs háskólarektors gegndi
Jakob fullu prófessorsstarfi, en samningur
milli Háskóla Islands og Hafrannsóknastofn-
unarinnar ákvæði, hver hlutur kennslu,
stjórnunar og rannsókna yrði í starfi hans.
Prófessor í gamlatestamentisfræði
24.08.95: Fram var lagt bréf, dags. 23. þ. m.,
undirritað af Jóni Sveinbjörnssyni, forseta
guðfræðideildar, þar sem óskað var eftir sam-
þykki háskólaráðs fyrir því, að dr. Sigurður
Örn Steingrímsson yrði settur tímabundið í
persónubundið prófessorsembætti, sem Hið
íslenska Biblíufelag kostaði. Prófessornum
var ætlað að halda áfram að vinna að þýðingu
Gamla testamentisins á íslensku og að stunda
rannsóknir tengdar því. Erindi guðfræði-
deildar var samþykkt.
19.10.95: Lagt var fram bréf menntamála-
ráðuneytisins, dags. 6. þ. m., en þar tilkynnti
ráðuneytið, að það setti dr. Sigurð Örn Stein-
grímsson prófessor í guðfræðideild um
þriggja ára skeið.
Prófessor í mannfræði
29,06.95: Rektor talaði fyrir tillögu um, að
dr. Jens Ó. P. Pálsson, forstöðumaður Mann-
fræðistofnunar, yrði fluttur í persónubundið
prófessorsembætti við félagsvísindadeild.
Dómnefndarálit, sem taldi hann hæfan til að
gegna hinu hærra embætti, lá fyrir. Tillagan
var samþykkt.
07.09,95: Lagt var fram bréf mrn., dags. 16.
f. m., en þar var tilkynnt, að Forseti Islands
hefði skipað dr. Jens Ó. P. Pálsson prófessor í
mannfræði við félagsvísindadeild Háskóla
íslands frá 1. júlí 1995 að telja.
24.04.96: Lagt fram bréf mrn., dags. 18. þ.
m. Ráðuneytið samþykkir að höfðu samráði
við yfirstjórn Háskóla íslands, að starfslok
dr. Jens Ó. P. Pálssonar verði miðuð við 31 •
desember 1996.
Prófessor í stofnvistfræði spendýra
01.06.95: Rektor kynnti samning um persónu-
bundið prófessorsembætti dr. Páls Hersteins-
sonar, dags. 31. f. m., sem undirritaður er at
háskólarektor og ráðuneytisstjóra umhverfis-
ráðuneytisins. Raunvísindadeild á eflirað ljalla
um stofnun stöðunnar, og að því loknu kemur
málið til afgreiðslu í háskólaráði.
Rannsóknarmisseri kennara
15.06.95: Lögð voru fram drög að vinnu-
reglum um rannsóknarmisseri kennara við
Háskóla íslands, dags. í júní 1995. Edda
Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri starfs-
mannasviðs, og Sigrún Valgarðsdóttir, deild-
arstjóri á starfsmannasviði, tóku vinnuregl-
urnar saman á vegum Samráðsnefndar urn
kjaramál. Málinu frestað.
10.08.95: Edda Magnúsdóttir, framkvæmda-
stjóri starfsmannasviðs, gerði grein fyrir
framlögðum vinnureglum um rannsóknar-
misseri kennara við Háskóla Islands, sem
teknar voru saman af Samráðsnefnd um
kjaramál og dagsettar í júní 1995. Vinnuregl-
urnar yrðu teknar til frekari umræðu á næsta
fundi ráðsins.
24.08.95: Júlíus Sólnes, formaður Samráðs-
nefndar um kjaramál, mælti fyrir tillögu a
vinnureglum um rannsóknarmisseri kennaia
við Háskóla íslands, sem kynntar voru á sio-
asta fundi ráðsins. Vinnureglurnar voru stað-
festar með lítilsháttar breytingum á orðalag1-
05.12.96: Fyrir var lagt bréf, dags. 3. þ- u*-;
undirritað af Jóni Torfa Jónassyni, formanm
Samráðsnefndar, varðandi breytingu á vinnu-
reglum um rannsóknarmisseri kennara vi
Háskóla íslands, sem samþykktar voru
háskólaráði 24. ágúst 1995. Framlögð tillaga
að breyttum vinnureglum var samþykkt.
Rannsóknarprófessorar
18.05.95: Fram var lögð ný reglugerð um
rannsóknarprófessora undirrituð af mennta
málaráðherra, 9. þ. m. Rektor kynnti reg u
gerðina og skýrði þýðingu hennar ty
Háskóla íslands. Ákveðið var að fela
indanefnd háskólaráðs að móta reglur 111 ^
þær kröfur, sem gera skyldi til rannsóknar
prófessora, og í samvinnu við Rannsóknarr