Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 322
320
Árbók Háskólaíslands
Kennslumálanefnd 1991-1997
Skipun nefndarinnar og hlutverk
Kennslumálanefnd háskólaráðs var fyrst
skipuð samkvæmt samþykkt háskólaráðs 31.
október 1985. Formaður nefndarinnar frá
byrjun til ágústloka 1992 var Þorsteinn Vil-
hjálmsson, prófessor, en formaður síðan (til
september 1997) hefur verið Páll Skúlason,
prófessor. Á tímabilinu október 1991 til loka
háskólaársins 1996-1997 hafa eftirtaldir setið
í nefndinni: Guðrún Pétursdóttir, Páll Skúla-
son, Þorgeir Örlygsson, Þorlákur Karlsson,
Þórður Harðarson, Þorsteinn Vilhjálmsson,
Hjalti Hugason, Friðrik H. Jónsson, Guð-
mundur G. Haraldsson og EiríkurTómasson.
Fulltrúar stúdenta á tímabilinu 1991-1997
hafa verið þau Brynhildur Þórarinsdóttir,
Sesselja Árnadóttir og Magnús Hjaltalín
Jónsson. Þórður Kristinsson hefur starfað
með nefndinni allan tímann. Árni Finnsson
var ritari nefndarinnar til hausts 1993 og aftur
frá janúar 1997, og Stefán Ólafsson var ritari
frá hausti 1993 til ársloka 1996. Kennslu-
málanefnd hefur yfirleitt haldið fundi á
tveggja vikna fresti á kennslumisserum, auk
þess sem hún hefur gengist fyrir nokkrum
opnum fundum og ráðstefnum, sbr. hér á eftir.
Nefndin sendir háskólaráði íramvinduskýrslu
í lok hvers háskólaárs, og gerir formaður grein
fyrir störfum hennar í framhaldi af því.
Hlutverk Kennslumálanefndar er að
styrkja tengsl og samstarf Háskóla jslands
við framhaldsskóla og aðra háskóla í landinu
og vinna að bættri háskólakennslu og al-
mennri menntun. Einstök verkefni Kennslu-
málanefndar eru samkvæmt erindisbréfi:
a) Að styrkja tengsl Háskólans við fram-
haldsskóla og grunnskóla. Vinna að því,
að háskóladeildir og námsbrautir skil-
greini þær kröfur, sem gera þarf til nem-
enda um þekkingu og færni í undirstöðu-
greinum svo þeir geti haft fullt gagn af há-
skólakennslunni. Stuðla að virkara sam-
starfi mismunandi skólastiga og leitast
við að tryggja, að nemendur fái nauðsyn-
legan undirbúning fyrir háskólanám.
b) Fylgjast með kennsluháttum í háskólum
og gera tillögur um breytingar til viðeig-
andi aðila, eftir því sem ástæða er til.
c) Auka samvinnu Háskólans við aðra skóla
á háskólastigi og við ýmsa sérskóla.
Prófessor Páll Skúlason, formaður
Kennslumálanefndar háskólaráðs.
d) Sinna öðrum málum, sem rektor eða a
skólaráð kunna að fela nefndinni.
e) Nefndin gerir einnig tillögur um önnu
viðfangsefni á verksviði sínu.
Kennslumálanefnd hefúr með ýmsun
hætti tekið þátt í samstarfi skóla á hásko a^
stigi, skipað fulltrúa Háskólans í nefndm
þeim vettvangi og tekið þátt í fundum °tí ia^s
stefnum. Mörg verkefni nefndarinnar eru Pe ,
eðlis, að þau eru í sífelldri endurskoðun. ^
tímabilinu hefur nefndin sérstaklega beitt
fyrir því að vekja umræðu innan Hásko
um einstök málefni og hefúr í þeim tilgau ^
gengist fyrir umræðufúndum um tiltekm
efni á vettvangi sínum, þ. e. um starf hás 0
kennarans (1993), kennslustarfið alme
(1994) og bætta háskólakennslu (1996).
Helstu verkefni Kennslumálanefndai
1 Undirbúningur náms við HáskóU
Innds . .
Töluverð umfjöllun var á tímabilinu
inntökuskilyrði í Háskólann, undirbn ^
nýnema, um fjöldatakmarkanir, hugmynd' ^
aðfararpróf og um upphaf náms við Has ^
ann. Skiptar skoðanir voru um þörf fyr'r
arpróf og ávinning, sem það kynni að ha < ■