Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Side 324
322
Árbók Háskóla l'slands
e) endurmenntun og símenntun
f) kennslufyrirkomulag í ólíkum deildum
g) námsmat
Hóparnir störfuðu fram í mars 1997, þeg-
ar boðað var til loka ráðstefnunnar á fundi í
Odda. Þar voru niðurstöður hópanna lagðar
fram og kynntar, auk þess sem flutt voru er-
indi og kynnt verkefni, sem styrkt höfðu ver-
ið af kennslumálasjóði.
Niðurstöður starfshópanna voru fjölfald-
aðar á ráðstefnunni og verða gefnar út í hefti
líkt og annað, sem liggur eftir fúndina. Auk
þess eru unnt að finna niðurstöðurnar á há-
skólavefnum (http://www.hi.is/HI/Stjom/Kenn/).
2.2 Notkun veraldarvefsins: Á vormisseri
1995 var boðað til málstofú í samvinnu við
Kennslumálanefnd, kennslusvið og Reikni-
stofnun Háskólans um notkun veraldarvefsins í
háskólastarfi. Kynntar voru nýjungar í
upplýsingatækni og rakin dæmi um notkun
hennar í starfi kennara og stúdenta.
3 Könnun á kennslu og námskeiðum
llaldið var áfram könnun á kennslu og
námskeiðum, en slíkar kannanir hafa verið
geróar í lok misseris frá árinu 1989. Frá 1991
hafði könnunin verið gerð í nær öllum nám-
skeiðum í lok hvers misseris. Talsvert dró þó
úr þátttöku í könnuninni eftir fyrstu misserin,
og var framkvæmd hennar því tekin til endur-
skoðunar hjá Kennslumálanefnd í upphafi árs
1993. Samþykkt var, að á meðan farið yrði
yfir hinar ýmsu hliðar hennar yrði hún ein-
ungis gerð í hluta deilda á hverju misseri.
Leitað var leiða til að greiða fyrir framkvæmd
°g úrvinnslu, og á vormisseri 1996 var gerður
samningur við Hástoð (fyrirtæki stúdenta við
H. í.) um framkvæmd könnunarinnar, og hef-
ur framkvæmdin verið í höndum Hástoðar
síðan. Líkt og frá upphafi hefur Félagsvís-
indastofnun hins vegar annast úrvinnslu og
frágang gagna. Frá vormisseri 1996 hefur
könnunin staðið til boða í öllum deildum, þó
svo að heimtur hafi verið misjafnar.
4 Ýmis mál
4.1 Leiðbeiningar um námsmat: Á haust-
misseri 1991 samdi nefndin leiðbeiningar um
námsmat, sem sendar voru deildum og náms-
brautum til fróðleiks.
4.2 Lækkun kennsluskyldu nýráðinna
kennara: í lok september 1991 samþykkti
háskólaráð drög að reglum, sem Kennslu-
málanefnd hafði undirbúið um sérstaka
kennsluvinnu og stjórnun nýráðinna kennara.
Eiga nýráðnir kennarar kost á að fá lækkaða
kennsluskyldu á fyrstu misserum í starfi.
4.3 Leiðbeiningar til framhaldsskóla:
Bæklingurinn UndirbúningUr náms við Há-
skóla íslands: Leiðbeiningar til framhalds'
skóla og nemenda þeirra, sem nefndin útbjó
í samvinnu við menntamálaráðuneytið 1986-
1987, var yfirfarinn og endurskoðaður og
gefinn út að nýju vorið 1992.
4.4 Kennslumálasjóður: Reglur urn
kennslumálasjóð voru endurskoðaðar í febr-
úar 1992 og nýjar reglur um sjóðinn síðan
samþykktar í háskólaráði 27. s. m. Árlega
voru veittir um 15 styrkir til kennara til að
koma á margvíslegum nýmælum í kennslu og
til undirbúnings og útgáfu kennslugagna.
4.5 Starfsvenjur við kennslu, nám og pr°f
í Háskóla íslands: Á fundi háskólaráðs 10-
ágúst 1995 var rektor og framkvæmdastjóra
kennslusviðs falið í samráði við Stúdentaráð
að fara yfir drög að tillögu, sem bar heitið
Verklagsreglur jyrir samskipti kennara °&
nemenda, en tillagan hafði verið lögð fram 1
ráðinu 15. júní 1995. Textinn var endurskoð-
aður og umskrifaður og ræddur í háskólaráój
5. október um haustið. Kennslumálanefnd
var falið á fundi háskólaráðs 14. desember a
ganga frá honum til útgáfu í samráði við
Stúdentaráð. Bæklingur með heitinu StarjS'
venjur við kennslu, nám og próf i Háskóla Is-
lands kom svo út sem fylgirit með 1 ■ tb ■
Stúdentablaðsins 1996 og var sendur öllum
stúdentum Háskólans. Texti bæklingsins var
einnig birtur á háskólavefnum
(http ://www. hi.i s/HI/Stjorn/Kenn/).
5 Lmsagnir um frumvörp og fleira
Á tímabilinu 1991-1997 fjallaði nefcdm
um ýmis mál, sem ekki er rúm til að reifc
í einstökum atriðum. Nefna má umsagnir UI1
frumvarp til laga um Háskólann á Akurey
(1992), nefndarálit um háskólamenntun í |S
um (1993), frumvarp um fullorðinslræ s
(1992), skýrslu nefndar um Háskólasjónva
(1993), áfangaskýrslu nefndar um mo1